Síðast uppfært 20.10.2010

In English - coming soon 

Velkomin á heimasíðu
Deildar íslenska fjárhundsins - díf

 

 
Hundaræktarfélag Íslands - HRFÍ

 

 Forsíða

 Um tegundina

 - Ræktunarmarkmið
 - Saga
 - Ræktunarstefna
 - Heilbrigði

 Upplýsingar

 - Stjórn og nefndir
 - Af fundum
 - Sýningar
 - Gönguplan
 - Til ræktenda
 - Rakkalisti
 - Ræktendur
 - Hvolpalisti (2)
 - Í leit að heimili (1) 

 Ýmislegt

 - Greinar
 - Myndir
 - Til sölu
 - Eyðublöð
 - ISIC

 Fréttir

 - www.iseyjar.is
 - Gönguplan
 -  Warning
 - Viðvörun frá Danm.
 - Skapgerðarmat fyrir 
      íslenska fjárhunda

 

Skráning á póstlista

Nafn:

Netfang    

   

 Sýnendanámskeið

Viltu verða góður/betri sýnandi?

Auður Sif Sigurgeirsdóttir og Þorbjörg Ásta Leifsdóttir hafa ákveðið að fara af stað með sýnendanámskeið þar sem áhersla er lögð á sýnandann sjálfan og hvernig hann ber sig að í sýningarhringnum.
Báðar hafa þær sýnt hunda með frábærum árangri frá unga aldri ásamt því að þjálfa börn, unglinga og fullorðna fyrir sýningar HRFÍ.

Kynning á Auði Sif:
- Var einn af stofnendum Unglingadeildar HRFÍ og var formaður hennar frá stofnun til ársins 2008.
- Keppti í ungum sýnendum og var fjórum sinnum stigahæsti ungi sýnandi ársins ásamt því að vera fulltrúi Íslands í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda á Crufts árin 1998, 1999 og 2000 en á milli 30-40 lönd senda fulltrúa í keppnina. Árið 1999 var hún í hópi 10 bestu en árið 2000 náði hún þeim frábæra árangri að vera í 2. sæti í keppninni. 
- Hefur verið þjálfari íslenska landsliðsins fyrir Norðurlandakeppni ungra sýnenda í 4 ár en liðið hefur náð frábærum árangri í keppninni sem fyrst var haldin árið 2006.
- Hefur sýningarþjálfað börn, unglinga og fullorðna í 11 ár. 
- Dómari í keppni ungra sýnenda. Hefur dæmt í Svíþjóð, Hollandi, Finnlandi og á Íslandi. Þess má geta að henni var boðið að dæma úrslitakeppni ungra sýnenda í Finnlandi 2008 þar sem hún valdi fulltrúa Finnlands fyrir alþjóðlegu keppnina á Crufts 2009.
- Hefur haldið námskeið fyrir unga sýnendur í Finnlandi.
- Hefur sýnt hunda í Skandinavíu og Bretlandi. Sýndi hunda í Finnlandi sumrin 2004 og 2005.
- Hefur sótt ýmis sýnendanámskeið og ræktunarnámskeið þar sem áhersla er lögð á byggingu og hreyfingar hunda.
- Var aðstoðarmanneskja atvinnusýnandans Hugo Quevedo þegar hann hélt námskeið á Íslandi 2009 og 2010.
- Stefnir á dómaranám í nánustu framtíð.

Kynning á Þorbjörgu Ástu:
- Sitjandi formaður Unglingadeildar HRFÍ.
- Keppti í ungum sýnendum og var fulltrúi Íslands á heimssýningunni í Svíþjóð 2008 og í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda á Crufts 2009 þar sem hún var meðal 10 bestu.
- Var í landsliði Íslands í Norðurlandakeppni ungra sýnenda árin 2006, 2007 og 2008. Náði þeim frábæra árangri að verða tvisvar í 2. sæti með liðinu og varð í 3. sæti í einstaklingskeppninni árið 2006.
- Hefur sýningarþjálfað börn, unglinga og fullorðna í mörg ár.
- Hefur sótt ýmis sýnendanámskeið og ræktunarnámskeið þar sem áhersla er lögð á byggingu og hreyfingar hunda.
- Hefur sýnt hunda í Skandinavíu og Kanada og unnið sem „kennel hjálp“ í báðum löndum.
 
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á eftirfarandi þætti:
- Persónulega þjálfun hvers og eins.
- Sýnandann sjálfan og sjálfsöryggi hans í sýningarhringnum.
- Alls kyns gagnlegar þjálfunaraðferðir sem gott er að nota þegar hundur er þjálfaður fyrir sýningar.
- Allt sem viðkemur sýningarhringnum, t.d. hraða hundsins, taumhald, uppstillingu, tímasetningu, hreyfingu í hóp, fígúrur, borðþjálfun (fyrir smáhunda) og fleira.
- Persónulegan stíl hvers og eins.
- Í lok námskeiðsins verða allir þættir tvinnaðir saman og farið verður í gegnum allt ferlið í heild sinni.

Námskeið fyrir stóra og millistóra hunda verður 18.-19. október nk. í reiðhöll Gusts í Kópavogi kl. 19-21. Fleiri námskeið verða svo eftir áramót og verða nánar auglýst síðar.
 
Skráning fer fram á synendanamskeid@gmail.com og þar þarf að koma fram nafn, símanúmer, hvort viðkomandi er byrjandi eða reyndur, tegund hunds og netfang. Athugið að aðeins 20 komast á námskeiðið.

Bestu kveðjur,
Auður
GSM: 698-7142
Þorbjörg
GSM: 844-0851
 

________________________________________________________________________
Best er að skoða þessar síður í 1024x768 pixels upplausn. Umsjónarmaður vefs.
© 2006-2007 Deild íslenska fjárhundsins. Afritun óheimil án leyfis. Allur réttur áskilin