|
|
Eldri hundar í leit að heimili Aðstæður geta breyst og því þarf fólk stundum að koma hundinum sínum fyrir á öðru heimili. Hér er því hægt að auglýsa eldri hunda sem vantar heimili.
Það væri gott að fá senda mynd með.
Við erum með 6 mánaða Íslenska tík sem við þurfum að finna annað heimili fyrir vegna breyttra heimilisaðstæðna. Við erum að skoða það að láta hana á svokallaðan ræktunar eða fóðursamning, láta hana á gott heimili án endurgjalds með því skilyrði að það verði ræktað undan henni (ef hún stenst allar kröfur þegar að því kemur) og við fengjum andvirði eins hvolps úr fyrsta gotinu. Hún er undan Kersins Undramundi IS13279/09 og Perlu IS08878/05 Áhugasamir endilega hafið samband á sylvia.gudmundsdottir.10@bifrost.is
Sunnusteins Brímir er 4ra ára mjög fjörugur rakki sem vantar nýtt heimili. Hann er ógeldur. Frekari upplýsingar: elinalberts@simnet.is
|
|
________________________________________________________________________ |