|
|
Til ræktenda Mikilvægt er að ræktendur kynni sér vel lög og reglur Hundaræktarfélags Íslands og sérstaklega þær kröfur sem gerðar eru fyrir skráningu gota í ættbók. Reglugerð um skráningu í ættbók Hundaræktarfélags Íslands Skilyrði fyrir skráningu íslenskra fjárhundshvolpa í ættbók hjá HRFÍ er að báðir foreldrar hafi verið myndaðir með tilliti til mjaðmaloss (HD) og að niðurstaða liggi fyrir. Einnig þurfa báðir foreldrar að hafa gilda augnskoðun við pörun. Athugið að augnskoðun gildir í 12 mánuði hjá hundum fyrir þriggja ára aldur en séu hundar augnskoðaðir eftir að þeir eru fullra þriggja ára gildir augnskoðunin í 26 mánuði. Niðurstöður þessara skoðana eiga að vera kunnar fyrir pörun. Hafi rakki HVORKI verið sýndur á hundasýningu eftir 6 mánaða aldur NÉ eigi skráð afkvæmi þarf vottorð um að bæði eistu hans séu rétt staðsett að fylgja skráningu. Nánari upplýsingar er að finna á vef
Hundaræktarfélags Íslands: |
________________________________________________________________________ |