Síðast uppfært 08.05.2010

In English - coming soon 

Velkomin á heimasíðu
Deildar íslenska fjárhundsins - díf

 

 
Hundaræktarfélag Íslands - HRFÍ Desember 2009 Janúar 2010 Febrúar 2010 Mars 2010 Apríl 2010 Maí 2010

 

 Forsíða

 Um tegundina

 - Ræktunarmarkmið
 - Saga
 - Ræktunarstefna
 - Heilbrigði

 Upplýsingar

 - Stjórn og nefndir
 - Af fundum
 - Sýningar
 - Gönguplan
 - Til ræktenda
 - Ræktendur
 - Hvolpalisti (1)
 - Í leit að heimili

 Ýmislegt

 - Greinar
 - Myndir
 - Til sölu (3)
 - Eyðublöð
 - ISIC

 Fréttir

 - www.iseyjar.is
 - Gönguplan
 - Viðvörun frá Danm.
 - Skapgerðarmat fyrir 
      íslenska fjárhunda

 

Skráning á póstlista

Nafn:

Netfang    

   

Icelandic Sheepdog International Comittee - ISIC

Alþjóðleg samvinna um íslenska fjárhundinn

Heimasíða ISIC: http://www.icelanddog.org/

____________________

Á ISIC ráðstefnunni í Kaupmannahöfn i október 2004 var ákveðið að koma eftirfarandi upplýsingum í blöð aðildarlandanna.

Upplýsingarnar höfða til allra ræktenda og eiganda að íslenskum fjárhundum og ættu allir sem vilja varðveita íslenska fjárhundinn í framtíðinni að lesa þær. 

Til að tryggja framgang íslenska fjárhundsins fyrir komandi kynslóðir, er mikilvægasta verkefni ISIC og allra klúbba að varðveita, og ef mögulega er hægt, að auka við  genabreidd stofnsins. Með tilkomu ISIC samvinnunnar hefur orðið til nokkuð sem er einstakt fyrir eitt kyn, það er að segja  gagnagrunnurinn um alla íslenska fjárhunda sem eru ættbókarskráðir í heiminum, frá þeim tíma er  byrjað var að skrá hunda á Íslandi fyrir ca. 50 árum.

Með tilliti til þeirra hunda sem eru grunnurinn ( upphafið) fyrir tegundina, skiptir samt mestu máli að hafa þekkingu á öllum hundum í heiminum, til hagnýtis fyrir áframhaldandi ræktun. Það er samt hvað sem öðru líður áhætta að þessir möguleikar takmarkist, og við viljum þess vegna biðja meðlimi og einkum ræktendur, að vera meðvitaðir um það sem stendur hér að neðan. Þrátt fyrir að það séu ekki margir sem hafa áhuga á upplýsingum um samtökin, sýnir þetta hvaða þýðingu þau  geta haft fyrir framhald á framgangi hundakynsins.

Við sem myndum þær sjö opinberu ræktunardeildir innan ISIC,  erum  gegnum hundaræktarfélög okkar landa tengd ,,Federation Cynologique Internationale” (FCI), stærstu  samtök sinnar tegundar í heiminum.

Öll FCI-löndin hafa í gegnum alþjóðlegt samkomulag samskonar kröfur um útgáfu á ættbókarskrám. FCI ábyrgist gegnum sín samhljóma lög sannleika ættbókanna.

Á Norðulöndum fer fyrrnefnd ættbókarskráning fram hjá hundaræktarfélögum landanna-  í Danmörku hjá DKK.

Í Þýskalandi er innan þýska hundaræktarfélagsins , viðurkenndur  sérklúbbur ,,Þýskur klúbbur fyrir norræna hunda” (DCNH) - ábyrgð á tegundum og ættbókarskráningum  fyrir norræn hundakyn, meðal annars íslenska fjárhundinn. Í gegnum sína tenginu við þýska hundaræktarfélagið er DCNH hluti af FCI.

Það er samt til  klúbbur sem ekki er viðurkenndur, er hann fyrir áhugafólk um hreinræktun í Þýskalandi. Hann  er kallaður ,, Vereinigung der Züchter, Besitzer und Freunde des Islandhundes in Deutschland “ (vdZBF) Félagsskapur ræktenda, eigenda og vina Íslandshundsins í Þýskalandi.  Undir pappírum frá þeim stendur ,,Freunde”.  Þessi klúbbur er ekki innan FCI eins og við hin,  og hjá þeim eru útgefnar ættbækur með þeim skilmálum, að þær séu ekki viðurkenndar af hundaræktarfélögum innan FCI.  Afkvæmi skráð af  Freunde, fá sem sagt ekki ættbækur sem eru viðurkenndar, þó svo hundarnir eigi foreldra með FCI-ættbækur. Afkvæmin nýtast þar með ekki til framhaldsræktunar hjá viðurkenndum ræktunarfélagögum  innan FCI. Þessa hunda er ekki hægt að sýna eða leyfa þátttöku í keppnum á nokkrum vettvangi inn FCI-samtakanna.

Ræktendur innan hinna alþjóðlegu ræktunarfélaga sem selja/afhenda hunda til VdZBF eða annarra óviðurkenndra klúbba ( sem velja að vera utan okkar reglna og skrá hunda á sinn hátt)  taka þá áhættu þar með að minnka genabreidd kynsins.

Ættbækur viðurkenndar af félögum sem eru innan FCI, þekkjast af merki  FCI (lógói)

Aðildarlönd ISIC

Danmörk 

Finnland 

Holland 

Ísland 

Noregur 
Svíþjóð
Þýskaland
 

________________________________________________________________________
Best er að skoða þessar síður í 1024x768 pixels upplausn. Umsjónarmaður vefs.
© 2006-2010 Deild íslenska fjárhundsins. Afritun óheimil án leyfis. Allur réttur áskilin