| |
Til sölu
Hér geta meðlimir í díf auglýst ýmiskonar
muni tengda íslenska fjárhundinum sem þeir hafa til sölu. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband
við umsjónarmann vefs.
- Veggspjald með
myndum af íslenska fjárhundinum
Bæntasamtök Íslands hafa gefið út veggspjald með myndum af
íslenska fjárhundinum en erfðanefnd landbúnaðarins styrkti útgáfu
þess. Á veggspjaldinu eru 27 myndir en það kostar 1.500 kr. m/vsk en
einnig er hægt að fá minna veggspjald í stærðinni A3 sem kostar þá
900 kr. m/vsk. Ath. sendingarkostnaður er ekki innifalinn.
Þeir sem vilja nálgast veggspjald er bent á að hafa samband við Guðna
í síma 894-1871. Einnig er hægt að fá veggspjaldið sent en bætist
þá sendingarkostnaður við uppgefið verð.

- HRFÍ hefur gefið
myndband sitt um íslenska fjárhundinn út á DVD en áhugasamir geta keypt
eintak á skrifstofu félagsins.
ISIC - Icelandic Sheepdog International
Comittee - hefur látið útbúa barmnælu með merki ISIC. DÍF hefur
þessa nælu til sölu og er jafnvel talið að nælurnar öðlist
söfnunargildi í framtíðinni.
Nælan er blá, rauð og grá, 2 x 2 cm að stærð og kostar 500 kr/stk, auk sendingarkostnaðar.
Áhugasamir eru hvattir til að senda línu á dif@dif.is.


|