|
| ATH! Smellið hér til að sjá ræktunarmarkmiðið á pdf-formi.
FCI
ræktunarmarkmið nr. 289
FCI
Ræktunarmarkmið nr. 289/13.05.1999 UPPRUNI
OG HEIMALAND:
Ísland. UPPHAFLEGUR
ÚTGÁFUDAGUR:
24. 06. 1987 EIGINLEIKAR:
Smalahundur. FCI-FLOKKUN:
Tegundahópur
5
Spísshundur.
Flokkur
3.
Norrænn
vakt- og smalahundur. SAGA:
Íslenski fjárhundurinn er eini þjóðarhundur Íslendinga. Hann barst
til landsins þegar á landnámsöld með norrænum víkingum. Hundurinn varð bændum
ómissandi við smölun og yfirsetu og vinnueiginleikar hans hafa aðlagast
landslagi, búskaparháttum og harðri lífsbaráttu Íslendinga á liðnum öldum.
Á
síðustu áratugum hafa vinsældir íslenska fjárhundsins aukist og þrátt
fyrir að stofninn sé ekki stór, telst hann ekki lengur í útrýmingarhættu. HEILDARSVIPUR:
Íslenski fjárhundurinn er norrænn smalahundur, tæplega meðalstór með
upprétt eyru og hringað skott. Séð frá hlið mynda lengd og hæð hundsins
rétthyrning, en lengd frá bringubeini aftur að setbeini verður að vera
meiri en hæð hans á herðakamb. Hæð framfóta á að vera jöfn hæð brjóstkassa. Mildur,
greindarlegur og oft brosleitur svipur, öruggt og fjörlegt fas er einkennandi
fyrir íslenska fjárhundinn. Hárafar
er með tvennu móti, ýmist snöggt eða loðið, en ávallt þétt og hrindir
vel frá sér vætu. Útlitsmunur
er greinilegur á milli hunds og tíkar. EIGINLEIKAR
OG LUND:
Íslenski fjárhundurinn er fimur og
þolinn smalahundur sem geltir og nýtist vel til að reka og safna saman búfénaði
úr haga eða af fjalli og til fjárleita. Vakteðli
er hundinum eiginlegt og sýnir hann áberandi gestalæti er ókunna ber að garði,
án þess þó að vera árásargjarn. Veiðieiginleikar eru ekki áberandi í
fari hans. Íslenski
fjárhundurinn er glaður og vingjarnlegur hundur, forvitinn og
fjörmikill með ljúfa lund, harðger og óragur. HÖFUÐ:
Höfuð er sterklegt
og húð þéttliggjandi. Lengd höfuðkúpu er ívið meiri en lengd trýnis.
Séð ofanfrá og frá hlið myndar höfuðið þríhyrning. Höfuðkúpa:
Höfuðkúpa er aðeins hvelfd. Ennisbrún:
Ennisbrún er greinileg, en hvorki há né brött. Nef:
Nef er svart en dökkbrúnt á mórauðum og leirhvítum hundum. Trýni:
Trýni er kröftugt, fremur stutt og beint og mjókkar fram í snubbóttan þríhyrning
séð bæði frá hlið og ofanfrá. Varir:
Varir liggja þétt að kjálkum,
litaraft svart en dökkbrúnt á mórauðum og leirhvítum hundum. Bit
og tennur: Kjálkar og tennur mynda skærabit. Fulltenntur. Kinnar:
Kinnar eru sléttar. Augu:
Augu eru í meðallagi stór og möndlulaga, dökkbrún á lit en aðeins ljósari
á mórauðum og leirhvítum hundum. Hvarmalitur er svartur en dökkbrúnn á mórauðum
og leirhvítum hundum. Eyru:
Eyru eru í meðallagi stór og upprétt og nálgast jafnarma þríhyrning að lögun.
Brúnir eru sléttar en eyrnabroddar aðeins ávalir. Eyrun eru hreyfanleg og
kvik og undirstrika athygli og hugarástand hundsins. HÁLS:
Háls er í meðallagi langur og
reistur, sterklegur og hvelfdur við hnakka. Húð er þéttliggjandi. BOLUR:
Bolur er sterklegur og í samræmi við
byggingu hundsins og heildarsvip.
Bak:
Bak er sterklegt, vel vöðvafyllt og beint. Brjóstkassi:Brjóstkassi
er langur, djúpur og vel hvelfdur. Lend:
Lend er breið og vöðvafyllt
. Spjaldhryggur:
Spjaldhryggur er tiltölulega stuttur, breiður, ávalur og vel vöðvafylltur. Kviður:
Kviður er aðeins uppdreginn. SKOTT:
Skott er
hátt ásett og hringast upp á bakið. ÚTLIMIR: FRAMFÆTUR:
Framfætur séðir framan frá eru
samsíða, beinir og sterkbyggðir. Liðbeygjur eru eðlilegar. Bógar:
Herðablöð eru vel hallandi og bógar vel vöðvafylltir. Sporar:
Sporar mega vera tvöfaldir. Loppur:
Lögun loppunnar er aðeins ílöng, tær eru hvelfdar og liggja þétt saman.
Þófar eru stinnir. AFTURFÆTUR:
Afturfætur
séðir aftan frá eru samsíða, beinir og sterkbyggðir. Liðbeygjur eru eðlilegar. Læri:
Læri eru breið og vöðvamikil. Sporar:
Sterklegir, tvöfaldir sporar (fjársporar), eru mjög æskilegir. Séu
tvöfaldir sporar á
fram- og afturfótum er hundurinn alspora. Loppur:
Sjá framfætur. HREYFINGAR:
Hreyfingar eru vasklegar, léttar og
fjörlegar. Spyrna afturfóta er kröftug. Yfirferð er drjúg. FELDUR:
Feldur er myndaður úr þeli og
yfirhárum og hrindir vel frá sér vætu. HÁRAFAR:
Hárafar er með tvennu móti: ·
Snöggt hárafar:
Ytri hár eru í meðallagi löng og frekar gróf en þelið þétt og mjúkt. Hár
á trýni, kolli, eyrum og
framan á fótleggjum er þétt og sneggra, en lengra á hnakka, á hálsi,
herðakambi, bringu og
aftan á lærum. Skott er þétthært og loðið og lengd skotthára er
í samræmi við hárafar hundsins. ·
Langt hárafar (lubbar):
Ytri hár eru lengri en í meðallagi og frekar gróf en þelið þétt og mjúkt.
Hár á trýni, kolli, eyrum og framan á fótleggjum er þétt og sneggra, en
mun lengra á hnakka, við eyru, á
hálsi, herðakambi, bringu, aftan á framfótum (fanir) og aftan á lærum.
Skott er þétthært og loðið og lengd skotthára í samræmi við hárafar
hundsins. LITIR:
Litbrigði eru með ýmsu móti, en
þó skal einn aðallitur ávallt vera ríkjandi. Aðallitir
eru: ·
Gulur í ýmsum blæbrigðum, allt frá
ljósgulum lit til dökkrauðguls litar. ·
Leirhvítur. ·
Mórauður. ·
Grár. ·
Svartur. Hvítt
fylgir alltaf aðallit, en algengir hvítir flekkir eru: Blesa (blesótt), önnur
kinn eða helmingur höfuðs (skjömbótt), kragi (strútótt), á bringu, í
skottenda (tíra/týra), í kringum klær (sporótt), upp eftir löpp (löppótt)
og hátt upp
eftir löpp (leistótt). Mjög
algengt er að aðalliturinn sé ljósari, jafnvel hvítur, frá hálsi undir
kvið og aftur á skottenda (botnótt). Oft
fylgir kolóttur blær á trýni gulum og gráum feldlit og jafnvel svört hár
og hárendar (kolhært). Svörtum
aðallit fylgja alltaf einhverjir af ofangreindum hvítum flekkjum ásamt gulum
lit á fótleggjum, kinnum og yfir augum (þrílitt). Mikið
flekkótt er leyfilegt, en ekki er æskilegt að hvítt sé ríkjandi. HÆÐ
:
Æskileg hæð hunda er 46 sm og tíka
42 sm. GALLAR
:
Öll frávik frá ofangreindri lýsingu
eru gallar sem skulu dæmdir í réttu hlutfalli við frávikið frá ræktunarmarkmiðinu.
·
Svört kápa (kápótt) með
gulum og gráum aðallit. ALVARLEGIR
GALLAR: ·
Engir sporar. ·
Gul augu. ·
Kringlótt, útstæð augu. Hundur
með augljósa líkams- eða hegðunargalla fær einkunnina 0. ATHUGIÐ:
Bæði eistu skulu vera af eðlilegri
stærð og rétt staðsett í pungnum. |
|
________________________________________________________________________ |