Síðast uppfært 08.05.2010

In English - coming soon 

Velkomin á heimasíðu
Deildar íslenska fjárhundsins - díf

 

 
Hundaræktarfélag Íslands - HRFÍ Desember 2009 Janúar 2010 Febrúar 2010 Mars 2010 Apríl 2010 Maí 2010

 

 Forsíða

 Um tegundina

 - Ræktunarmarkmið
 - Saga
 - Ræktunarstefna
 - Heilbrigði

 Upplýsingar

 - Stjórn og nefndir
 - Af fundum
 - Sýningar
 - Gönguplan
 - Til ræktenda
 - Ræktendur
 - Hvolpalisti (1)
 - Í leit að heimili

 Ýmislegt

 - Greinar
 - Myndir
 - Til sölu (3)
 - Eyðublöð
 - ISIC

 Fréttir

 - www.iseyjar.is
 - Gönguplan
 - Viðvörun frá Danm.
 - Skapgerðarmat fyrir 
      íslenska fjárhunda

 

Skráning á póstlista

Nafn:

Netfang    

   

Grein úr jólablaði Sáms 2009

ISIC og íslenski fjárhundurinn
Þorsteinn Thorsteinson

ISIC stendur fyrir Icelandic Sheepdog International Cooperation en ISIC er samstarfsvettvangur landa um allt það er snýr að íslenska fjárhundinum, velferð hans og ræktun í nútíð og framtíð.

Aðildarlönd ISIC eru í dag auk Íslands, Bandaríkin, Danmörk, Finnland, Holland, Kanada, Noregur, Svíþjóð og Þýskaland auk þess sem samstarf er hafið við nýstofnað félag um íslenska fjárhundinn í Sviss. Guðrún Guðjohnsen, fv. formaður HRFÍ og DÍF, er í forsvari fyrir ISIC en auk hennar eru Hans-Åke Sperne frá Svíþjóð og Wilfred Olsen frá Danmörku þar einnig lykilmenn en Guðrún og Hans-Åke hafa verið í forsvari ISIC allt frá upphafi.

Formlega var stofnað til samstarfsins árið 1996 en fyrsta ráðstefna ISIC var haldin í Svíþjóð. Fulltrúar aðildarlandanna hafa síðan komið saman árlega en ráðstefnan í ár var haldin á Íslandi í tilefni 40 ára afmælis Hundaræktarfélags Íslands og 30 ára afmælis Deildar íslenska fjárhundsins.

Ræktunarstefna

Aðilarlönd ISIC hafa samþykkt alþjóðlega ræktunarstefnu fyrir íslenska fjárhundinn. Meginþáttur ræktunarstefnunnar snýr að verndun og varðveislu stofnsins en stefnan er byggð á ráðleggingum sérfræðinga, s.s. Dr. Per-Erik Sundgren og Dr. Pieter Oliehoek. Stefnunni er ætlað að styðja ræktun heilbrigðra hunda með góða vinnueiginleika og dæmigerða lund íslenska fjárhundsins. Helstu atriði ræktunarstefnunnar eru eftirfarandi:

  1. Erfðagr unnur . Með framtíð íslenska fjárhundsins í huga er nauðsynlegt að viðhalda erfðabreytileika tegundarinnar en markmiðið er að viðhalda og ná erfðagrunni heildarstofnsins í 150 til 200 sem er nægjanlega hátt svo erfðabreytileiki glatist ekki að ráði.
    1. ISIC mælir því með að fjöldi afkvæma einstakra undaneldishunda verði ekki fleiri en 35 og að hver hundur eignist ekki meira en helmingi fleiri barnabörn.
    2. ISIC mælir með að fjöldi afkvæma einstakra undaneldistíka verði ekki fleiri en 25.

Þessar tölur eiga við allt æviskeið hunda og eru óháðar því í hvaða landi þeir búa.

  1. Heilbrigði. Einungis ætti að rækta frá heilbrigðum hundum.
    1. ISIC mælir með að mjaðmaniðurstaða ræktunardýra sé þekkt og markmiðið er að rækta einungis frá hundum með A eða B mjaðmir.
    2. ISIC mælir með að öll ræktunardýr séu augnskoðuð og séu án arfgengra sjúkdóma.
  2. Lund. Svo viðhalda megi lund íslenska fjárhundsins er mælt með að hundar fari í skapgerðarmat (MH) áður en ræktað er frá þeim. Stefnt er að gerð tegundarprófíls út frá niðurstöðum skapgerðarmats íslenska fjárhundsins.

Gagnagr unnur

Segja má að kjarni ISIC samstarfsins felist í alþjóðlegum gagnagrunni yfir alla ættbókfærða íslenska fjárhunda í aðildarlöndunum. Samstarf sem þetta er talið einstakt í hundaheiminum og gríðarlega mikilvægt til framtíðar litið þegar hugsað er um þann takmarkaða erfðagrunn sem stofn íslenska fjárhundsins byggir á. Guðni Ágústsson, formaður DÍF, hefur haldið utan um gagnagrunn ISIC og lagt í hann gríðarlega vinnu ár hvert. Öll aðildarlöndin eiga og nota LatHunden, forrit sænska erfðafræðingsins Dr. Per-Erik Sundgren sem er félögum í HRFÍ að góðu k unnur .

LatHunden býður upp á ýmsa möguleika til greininga á stofni íslenska fjárhundsins, í hverju landi fyrir sig og einnig á heildarstofninum. Segja má að möguleikarnir séu nánast óþrjótandi en niðurstöðurnar eru þó ekki alltaf þær sem við vildum helst sjá.

Staða stofnsins á Íslandi

Meðaltals skyldleikastuðull í ræktun íslenska fjárhundsins hér á landi árið 2008 var 4,1% og hefur því hækkað dálítið frá því stuðullinn var lægstur, 3,4%, árið 2002. Minna verður á að skyldleikastuðull segir til um þann erfðabreytileika sem glatast en stuðullinn gefur aldrei upp alla söguna um raunverulega innræktun þar sem við útreikninga eru einungis skoðaðar 5 kynslóðir og ekki tekið tillit til fyrri innræktunar. Stofninn okkar er lítill og skyldleikaræktun hefur verið mikil í gegnum tíðina. Svo hundurinn okkar megi áfram vera eins heilbrigður og hann er í dag er ráðlagt að skyldleikastuðull við pörun sé ekki hærri en 2-2,5%.

Útreikningar á stofninum á Íslandi sýna að hámarks ásættanlegur afkvæmafjöldi einstakra hunda er 26 en sá hundur sem á flest skráð afkvæmi undanfarin ár á 65 afkvæmi. Einnig er nauðsynlegt að huga að fjölda barnabarna en ekki er æskilegt að barnabörn einstakra undaneldishunda séu fleiri en tvöfaldur hámarksfjöldi afkvæma. Að sjálfsögðu er erfitt að stjórna fjölda barnabarna en vert er að hafa þetta í huga og sérstaklega í ljósi þess að sá hundur sem eignast hefur flest barnabörn hér á landi undanfarin ár á 121 skráð barnabarn.

Hundar sem eignast fleiri afkomendur en æskilegt er kallast Matadorar en í dag eru 12 hundar á Íslandi skráðir sem slíkir og eru þeir feður 34% allra skráðra hvolpa og afar 49%.

Ættb.nr.

Nafn

Fd.

Afkvæmi

Barnabörn

IS02514/92

Kolur frá Húsatóftum

1992-05-30

39

16

IS02543/92

Týri

1992-11-06

3

53

IS02818/93

Prins

1993-08-19

37

69

IS03035/94

Týr frá Húsatóftum

1994-04-02

65

27

IS03332/94

Bjarki

1994-06-10

25

67

IS03365/94

Snælukku Bjartur

1994-05-11

13

57

IS02814/93

Vaskur

1993-03-16

24

71

IS04150/96

Ýrar Akkur

1996-03-26

34

111

IS04367/97

Kolgrímur

1996-11-23

42

43

IS04739/97

Gjósku Vaskur

1997-12-08

27

50

IS05329/99

Hektor

1999-07-01

50

121

IS07616/04

Kirkjufells Kappi

2003-09-29

31

9

Ræktunargr unnur

Ræktunargr unnur (e. Effective Population Size) er mælikvarða til að meta samfellt tap á erfðabreytileika. Reiknaður ræktunargr unnur verður því minni sem innræktun er meiri samanborið við fjölda ræktunardýra en meginregla er að ef ræktunargr unnur falli niður fyrir 50 þá sé allur stofninn í hættu.

Ræktunargrunni er skipt í tvennt, þ.e. hagnýtan ræktunargrunn (e. Utilized Effective Population Size) og tiltækan ræktunargrunn (e. Available Effective Population Size). Útreikningar á hagnýtum ræktunargrunni byggjast á því hvernig ræktendur hafa notað hunda sína við ræktunina. Í dag er hagnýtur ræktunargr unnur stofns íslenska fjárhundsins á Íslandi ekki nema 30 og ljóst að ræktendur verða að taka sig á og nýta þann erfðagrunn sem stofninn býr yfir. Tiltækur ræktunargr unnur byggir á sömu gildum og hagnýti ræktunargr unnur inn en tveimur kynslóðum síðar eftir handahófskennda „pörun“ ræktunardýra í forritinu. Tiltæki ræktunargr unnur inn segir því til um þá möguleika sem stofninn býr yfir breyti ræktendur ræktunarvenjum sínum. Í dag er tiltækur ræktunargr unnur íslenska fjárhundsins á Íslandi ekki nema 53.

Til samanburðar má geta þess að í Svíþjóð er hagnýtur ræktunargr unnur fyrir sama tímabil 77 og tiltækur ræktunargr unnur 89. Því er augljóst að ræktendur þar hafa staðið sig betur en við í heimalandinu m.t.t. til ræktunaraðferða og við nýtingu þeirra tækifæra sem búa í stofninum.

Út frá útreikningum á ræktunargrunni er hægt að greina þau áhrif sem einstakir karlhundar hafa á stofninn. Forritið „parar“ hunda síðustu 10 ára við allar tíkur sem eignuðust got á árunum 2004-2008, greinir bakgrunn þannig „gota“ og reiknar út skyldleikastuðulinn. Meðaltals-skyldleikastuðull þessara „gota“ er skoðaður og áhrif hundanna á stofninn sýnt sem hlutfall (%) frá meðaltali hans. Því er æskilegt að útkoman sé neikvæð, þ.e. í mínus, því þeir hundar munu leggja af mörkum til lækkunar á skyldleikastuðli stofnsins. Jákvæð útkoma merkir hins vegar að viðkomandi hundur er skyldari ræktunartíkunum en meðaltal stofnsins. Þau gen sem sá hundur ber eru því þegar útbreidd í stofninum og notkun hans til ræktunar mun lækka ræktunargrunninn og þannig stuðla að glötum á erfðabreytileika.

Langflestir hundar í stofninum eru hlutlausir (e. neutral), þ.e. þeir eru nálægt meðaltali stofnsins svo notkun þeirra í ræktun stuðlar hvorki að auknum erfðabreytileika né glötun erfðabreytileika. Samkvæmt forritinu er æskilegt að forðast að nota nokkra hunda en þónokkuð margir fá stimpilinn OK, þ.e. notkun þeirra til ræktunar myndi leggja af mörkum til lækkunar á skyldleikastuðli stofnsins og þar með stærri ræktunargrunni. Ávallt skal þó hafa í huga þegar þessi listi er skoðaður að þarna er ekki tekið tillit til heilbrigðis eða annarra þátta sem geta haft áhrif á ákvarðanir við ræktun, einungis er litið á ættbókina og hugsað um viðhald þess erfðabreytileika sem stofninn býr yfir og er svo mikilvægt svo íslenski fjárhundurinn megi lifa og sé áfram eins heilbrigðir og hann er í dag.

Í töflunni hér að neðan má finna lista yfir þá hunda sem mest myndu leggja af mörkum til lækkunar á skyldleikastuðli stofnsins. Hafa verður í huga að þessi listi er ekki tæmandi og fleiri hundar myndu leggja af mörkun til lækkunar á erfðabreytileika. Hér eru einungis nefndir þeir hundar sem mest myndu leggja af mörkum en umtalsvert fleiri er æskilegt að ræktað verði frá. Einnig er eftir að mjaðmamynda og augnskoða flesta þessara hunda en þær skoðanir eru skilyrði fyrir skráningu afkvæma í ættbók. Aðrir þættir geta einnig haft áhrif á val við ræktun og etv. eru einhverjir þessarra hunda ekki á lífi í dag. Nokkrum hundum var sleppt úr listanum þar sem þeir eru búsettir erlendis eða eru ekki aðgengilegir til ræktunar vegna annarra orsaka. Að lokum er einnig nauðsynlegt að vita að einungis voru kannaðir hundar 10 ára og yngri en nokkuð hefur verið um það undanfarin ár að 12-15 ára íslenskir hundar hafi eignast got sem sýnir vel hve heilbrigður hundur íslenski fjárhundurinn er.

Ættb.nr.

Nafn

Fd.

Hlutfall

Faðir

Móðir

IS05756/00

Vaskur

2000-02-14

-52%

Kolgrímur

Gríma

IS05757/00

Grímur

2000-02-14

-52%

Kolgrímur

Gríma

IS05758/00

Púlli

2000-02-14

-52%

Kolgrímur

Gríma

IS05817/00

Minni Núps Spori

2000-09-03

-62%

Kolur frá Húsatóftum

Drafla Frekna

IS05836/00

Þórdunu Ófeigur

2000-04-29

-63%

Drafla Sorró

Týra

IS05837/00

Þórdunu Kolur

2000-04-29

-63%

Drafla Sorró

Týra

IS05912/00

Askur

2000-05-29

-53%

Kappi

Drafla Embla

IS05913/00

Depill

2000-05-29

-53%

Kappi

Drafla Embla

IS05914/00

Dropi

2000-05-29

-53%

Kappi

Drafla Embla

IS06490/02

Drafla Kátur

2001-10-09

-55%

Stjörnu Kátur

Lýsa

IS06860/02

Drafla Tryggur

2001-10-09

-55%

Stjörnu Kátur

Lýsa

IS06905/02

Tryggur

2001-01-12

-51%

Glói

Týra

IS06953/02

Frónar Ás

2002-09-16

-58%

Týr frá Húsatóftum

Ölvaldsstaða Ula

IS07579/03

Hofshesta Kolbeinn

2003-06-16

-50%

Kátur

Skotta

IS07580/03

Hofshesta Glampi

2003-06-16

-50%

Kátur

Skotta

IS07581/03

Hofshesta Póker

2003-06-16

-50%

Kátur

Skotta

IS07694/04

Frónar Óðinn

2003-10-28

-52%

Frónar Freyr

Snæfríður Íslandssól

IS07695/04

Frónar Ægir

2003-10-28

-52%

Frónar Freyr

Snæfríður Íslandssól

IS07696/04

 

Frónar Grettir

2003-10-28

-52%

Frónar Freyr

Snæfríður Íslandssól

IS08512/05

Vaskur

2004-05-08

-58%

Tryggur

Skotta

IS08514/05

Tumi

2004-05-08

-58%

Tryggur

Skotta

IS08515/05

Vappi

2004-05-08

-58%

Tryggur

Skotta

IS08517/05

Týr

2004-05-08

-58%

Tryggur

Skotta

IS10571/07

Hnokki

2007-01-18

-51%

Fljóta Fróði

Týra

IS11509/08

Eldhamars Októ

2007-09-29

-55%

Týr frá Húsatóftum

Galtanes Panda

Viðauki sem ekki fylgdi greininni í Sámi:

Í töflunni hér að neðan má finna samskonar lista og listann í töflunni hér fyrir ofan. Hér er þó ekki einungis að finna þá hunda sem mest myndu leggja af mörkum til lækkunar á skyldleikastuðli stofnsins heldur einnig aðra hunda sem leggja nægjanlega mikið af mörkum svo þeir fá stimpilinn OK í LatHunden. Undanskildir eru þó hundar með mikið mjaðmalos (HD D og HD E), hundar með staðfesta arfgenga starblindu sem og hundar sem vitað er að eru eineistungar, er búið að gelda, eru búsettir erlendis eða ekki aðgengilegir til ræktunar af öðrum orsökum. Mikilvægt er að hafa ávallt í huga að hlutfallstölurnar (%) sem segja til um það hve mikið hver hundur leggur af mörkum til lækkunar á skyldleikastuðli eru einungis til viðmiðunar og munu breytast í hvern skipti sem skrár forritsins verða uppfærðar.

ættb. Nr. fd nafn Áhrif (%) faðir móðir
IS05678/00 12.11.1999 Tryggur (HD FRI B) -29% Galtanes Greifi Gyðja
IS05756/00 14.2.2000 Vaskur (HD ?) -52% Kolgrímur Gríma
IS05758/00 14.2.2000 Púlli (HD SVAK C) -52% Kolgrímur Gríma
IS05816/00 3.9.2000 Minni Núps Tíri (HD ?) -62% Kolur frá Húsatóftum Drafla Frekna
IS05817/00 3.9.2000 Minni Núps Spori (HD ?) -62% Kolur frá Húsatóftum Drafla Frekna
IS05836/00 29.4.2000 Þórdunu Ófeigur (HD SVAK C) -63% Drafla Sorró Týra
IS05837/00 29.4.2000 Þórdunu Kolur (HD FRI A) -63% Drafla Sorró Týra
IS05868/00 2.3.2000 Kátur (HD ?) -25% Ýrar Asi Kolur Gríma
IS05871/00 2.3.2000 Hektor (HD ?) -25% Ýrar Asi Kolur Gríma
IS05912/00 29.5.2000 Askur (HD ?) -53% Kappi Drafla Embla
IS05913/00 29.5.2000 Depill (HD ?) -53% Kappi Drafla Embla
IS05914/00 29.5.2000 Dropi (HD ?) -53% Kappi Drafla Embla
IS05936/00 9.9.2000 Lappi (HD ?) -43% Vaskur Melkolku Brenda
IS05937/00 9.9.2000 Ýmir (HD ?) -43% Vaskur Melkolku Brenda
IS06490/02 9.10.2001 Drafla Kátur (HD ?) -55% Stjörnu Kátur Lýsa
IS06860/02 20.5.2002 Drafla Tryggur (HD ?) -55% Stjörnu Kátur Lýsa
IS06905/02 12.1.2001 Tryggur (HD ?) -51% Glói Týra
IS12180/08 17.5.2002 Vetrarbrautar Tumi (HD ?) -28% Lækjamóts Kátur Dama
IS06953/02 16.9.2002 Frónar Ás (HD ?) -58% Týr frá Húsatóftum Ölvaldsstaða Ula
IS07073/03 12.9.2002 Sunnusteins Goði (HD ?) -46% Kolfinnur Reykjadals Staka Sól
IS07109/03 1.9.2003 Spotti (HD FRI ?) -39% Kolgrímur Galtanes Gríma Glóð
IS07579/03 16.6.2003 Hofshesta Kolbeinn (HD ?) -50% Kátur Skotta
IS07580/03 16.6.2003 Hofshesta Glampi (HD ?) -50% Kátur Skotta
IS07581/03 16.6.2003 Hofshesta Póker (HD ?) -50% Kátur Skotta
IS07694/04 28.10.2003 Frónar Óðinn (HD ?) -52% Frónar Freyr Snæfríður Íslandssól
IS07695/04 28.10.2003 Frónar Ægir (HD ?) -52% Frónar Freyr Snæfríður Íslandssól
IS07696/04 28.10.2003 Frónar Grettir (HD ?) -52% Frónar Freyr Snæfríður Íslandssól
IS08345/04 17.9.2004 Eldhamars Herkúles (HD ?) -46% Frónar Freyr Galtanes Panda
IS08346/04 17.9.2004 Eldhamars Freyr (HD FRI A) -46% Frónar Freyr Galtanes Panda
IS08348/04 17.9.2004 Eldhamars Lappi (HD ?) -46% Frónar Freyr Galtanes Panda
IS08512/05 8.5.2004 Vaskur (HD ?) -58% Tryggur Skotta
IS08514/05 8.5.2004 Tumi (HD ?) -58% Tryggur Skotta
IS08515/05 8.5.2004 Vappi (HD ?) -58% Tryggur Skotta
IS08517/05 8.5.2004 Týr (HD ?) -58% Tryggur Skotta
IS08655/05 29.1.2005 Stokk Sels Móra Skundi (HD ?) -30% Þórdunu Móri Stjörnuljósa Skógar Skíma
IS08656/05 29.1.2005 Stokk Sels Móra Skuggi (HD SVAK C) -30% Þórdunu Móri Stjörnuljósa Skógar Skíma
IS08849/05 15.4.2005 Stjörnuljósa Kolskeggur (HD ?) -35% Siggi Leirubakka Fjóla
IS08853/05 15.4.2005 Stjörnuljósa Kolfinnur (HD ?) -35% Siggi Leirubakka Fjóla
IS09083/05 15.5.2005 Gerplu Snata Tryggur (HD ?) -37% Blandon Von Hoytts Snati Gerplu Panda
IS09262/06 21.8.2005 Trítlu Tumi (HD ?) -37% Kersins Prins Drafla Trítla
IS09708/06 12.1.2005 Kirkjufells Breki (HD FRI B) -30% Týr frá Húsatóftum Leiru Harpa
IS09710/06 12.1.2005 Kirkjufells Bangsi (HD ?) -30% Týr frá Húsatóftum Leiru Harpa
IS09857/06 28.3.2006 Spori (HD ?) -26% Leirubakka Kátur Tíra
IS09860/06 5.12.2006 Stefsstells Snæþór Skundi (HD FRI A) -26% Kirkjufells Kappi Stefsstells Aska Spesía
IS09862/06 5.12.2006 Stefsstells Skrúður (HD FRI A) -26% Kirkjufells Kappi Stefsstells Aska Spesía
IS09903/06 18.6.2006 Strútur (HD ?) -33% Þórdunu Surtur Píla
IS09904/06 18.6.2006 Kátur (HD ?) -33% Þórdunu Surtur Píla
IS09905/06 18.6.2006 Sámur (HD ?) -33% Þórdunu Surtur Píla
IS09906/06 18.6.2006 Depill (HD ?) -33% Þórdunu Surtur Píla
IS10182/06 31.10.2006 Kersins Óríon (HD ?) -26% Eldhamars Freyr Kersins Salka
IS10183/06 31.10.2006 Kersins Bárður (HD ?) -26% Eldhamars Freyr Kersins Salka
IS10437/07 23.9.2006 Pjakkur (HD ?) -38% Eldhamars Freyr Hnúks Luska
IS10482/07 1.7.2007 Prins (HD ?) -26% Stefsstells Fáni Ásgarður Húfa
IS10483/07 1.7.2007 Tryggur (HD FRI B) -26% Stefsstells Fáni Ásgarður Húfa
IS10484/07 1.7.2007 Sámur (HD ?) -26% Stefsstells Fáni Ásgarður Húfa
IS10486/07 1.7.2007 Pjakkur (HD ?) -26% Stefsstells Fáni Ásgarður Húfa
IS10571/07 18.1.2007 Hnokki (HD ?) -51% Fljóta Fróði Týra
IS10838/07 17.4.2007 Bósi (HD ?) -29% Kirkjufells Kappi Fagrahvamms Snotra
IS10839/07 17.4.2007 Barón (HD ?) -29% Kirkjufells Kappi Fagrahvamms Snotra
IS10840/07 17.4.2007 Breki (HD ?) -29% Kirkjufells Kappi Fagrahvamms Snotra
IS11416/07 23.8.2007 Grettir (HD ?) -48% Stefsstells Ástríkur Birta
IS11509/08 29.9.2007 Eldhamars Októ (HD ?) -55% Týr frá Húsatóftum Galtanes Panda
IS11745/08 26.1.2008 Kersins Baldur (HD ?) -25% Sunnusteins Canis Þórdunu Skráma
IS11746/08 26.1.2008 Kersins Lási (HD ?) -25% Sunnusteins Canis Þórdunu Skráma
IS11747/08 26.1.2008 Kersins Lappi (HD ?) -25% Sunnusteins Canis Þórdunu Skráma
IS11764/08 21.1.2008 Ísrima Hugljúfur (HD ?) -28% Íslandssólar Grímur Töfra Hekla
IS11767/08 21.1.2008 Ísrima Máni (HD ?) -28% Íslandssólar Grímur Töfra Hekla
IS11768/08 21.1.2008 Ísrima Moli (HD ?) -28% Íslandssólar Grímur Töfra Hekla
IS11240/07 5.5.2007 Vetrarbrautar Erró (HD ?) -28% Lækjamóts Kátur Dama
IS12400/08 23.6.2008 Reykjadals Bróðir Djákni (HD ?) -34% Þórdunu Séra Sómi Töfra Hólmfríður Hrifla
IS12401/08 23.6.2008 Reykjadals Kópur Páfi (HD ?) -34% Þórdunu Séra Sómi Töfra Hólmfríður Hrifla
IS12711/08 16.8.2008 Frónar Garpur (HD ?) -34% Týr frá Húsatóftum Kersins Frigg
IS12773/08 16.10.2008 Þórdunu Geyr (HD ?) -37% Reykjadals Korpur Þórdunu Eyja
IS12967/09 28.3.2006 Spori (HD ?) -26% Leirubakka Kátur Tíra

 

 

 

 

________________________________________________________________________
Best er að skoða þessar síður í 1024x768 pixels upplausn. Umsjónarmaður vefs.
© 2006-2010 Deild íslenska fjárhundsins. Afritun óheimil án leyfis. Allur réttur áskilin