|
|
Af fundum .... Ársfundur
deildar íslenska fjárhundsins Fundurinn var
haldinn í sal Sjálfstæðisfélagsins í Grafarvogi, Hverafold 1-3. Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla
stjórnar 2. Ársreikningar
deildarinnar Fundarstjóri opnaði fyrir spurningar um skýrslu stjórnar. Guðríður Þ. Valgeirsdóttir tók undir orð Guðna og þakkaði meðstjórnendum fyrir samvinnuna. Hún er tengliður stjórnar HRFÍ og situr alla stjórnarfundi DÍF. Mikil vinna fylgir því að sitja í stjórn DÍF og þakkaði hún stjórnarmönnum DÍF fyrir hönd stjórnar HRFÍ það sem þeir leggja að mörkum fyrir þjóðarhundinn okkar. Hún nefndi einnig heimasíðu deildarinnar og að þar megi finna niðurstöður heilbrigðisskoðana hjá íslenska fjárhundinum sem rætt hefur verið að taka einnig upp í öðrum deildum. Guðríður þakkaði einnig Önnu Erlendsdóttur, eiginkonu Guðna, fyrir gestrisni en stjórnarfundir DÍF hafa verið haldnir á heimili þeirra hjóna. Hrund Hjaltadóttir fundarstjóri þakkaði einnig stjórnarmönnum fyrir þeirra framlag og tók undir orð Guðríðar. 3. Stjórnarkjör Í tilefni
afmælis deildarinnar var boðið upp á tertu í kaffihléi með áletruninni DÍF
30 ára. 4. Önnur
mál Albert Steingrímsson hundaþjálfari kynnti sporaleit fyrir fundargestum. Hann sagði íslenska fjárhundinn henta mjög vel til slíkra starfa en boðið hefur verið upp á sporanámskeið á Íslandi síðan 1995, öll árin hefur verið töluverð þátttaka og þónokkuð af íslenskum fjárhundum. Af hundum sem hafa náð góðum árangri sagði Albert einn vera í fersku minni, íslenska fjárhundinn Kirkjufells Kappa. Eftir þriggja daga námskeið með þann hund kvaðst Albert geta fullyrt að hann gæti slegið margar vinnuhundategundir út! Sporaleit gengur út á það að láta hund finna sporaslóð. Hann þarf að rekja slóðina í rétta átt, markera hluti sem lagðir eru í slóðina á leiðinni og láta stjórnanda vita. Allt þetta gerist í gegnum leik. Ef hundur er viljugur til að leika þá sagði Albert að ekkert mál væri að æfa sporaleit. Það er eitt sérlega gott við þetta sport, þetta er hægt að gera einn! Inn á námskeið komast hundar frá 10 mánaða aldri. Þetta hentar þetta öllum en fyrst og fremst er verið að nýta meðfætta eiginleika hundsins. Allir hundar sem hafa langt nef eru að sögn Alberts góðar í leit með nefi en erfiðara er að þjálfa hundategundir með klesst nef. Retriever hundar hafa skilað mjög góðri vinnu, einnig spaniel hundar, schnauzer eru að koma sterkir inn og líka þýskur fjárhundur. Albert sagði ennfremur að eini hundurinn sem hefur farið í gegnum próf í sporaleit hér á landi með fullt hús stiga væri border terrier. Guðríður bað Albert að segja frá hlutaleit líka. Þá er hundurinn hafður laus á svæði sem er stikað út, 50 x 50 m og markmiðið er að hundurinn finni 3-5 hluti á sem skemmstum tíma. Þessir hlutir geta verið allt frá pennaloki yfir í teskeið og hundarnir verða að læra að leita skipulega sem Albert segir að þeir geri mjög fljótt. Námskeið sem þessi eru ávallt einstaklingsbundin, þ.e. æfingar eru miðaðar að getu hvers og eins. Albert nefndi einnig að gaman væri að sjá íslenskan fjárhund keppa í hlýðni og þá sagðist hann ekki vera að tala um brons. Hann sagði íslenska fjárhundinn geta keppt við border collie í hraða í hlýðniæfingum og að fáar aðrar tegundir mundu slá þeim út. Albert stakk að lokum upp á að deildin sjálf mundi halda einhverskonar próf, t.d. hlutaleit eða bronspróf, og hvatti hann fundargesti til að prufa svona þjálfun og virkja hundna sína! Jón Magússon sagði frá old english sheepdog hundi með lélegar mjaðmir og hve hræðileg lífsreynsla það væri fyrir eiganda. Hann benti á að dæmi eru um aðrar deildin innan HRFÍ sem hafa bannað ræktun frá hundum með D og E mjaðmir og lagði til að DÍF færi að þeirra fordæmi. Jón sagðist ekki skilja af hverju verið væri að taka mjaðmamyndir ef ekki væri bannað að rækta frá hundum með svo slæmar mjaðmir. Guðríður benti á að í gegnum tíðina hafi oft verið sagt að íslenskir fjárhundar hafi ekki klínísk einkenni mjaðmaloss en í dag séu þekkt dæmi um slíkt. Guðríði finnst að þetta eigi að vera ákvörðun hvers ræktanda fyrir sig og bað hún fólk að íhuga vandlega hvað það væri að samþykkja. Þorsteinn Thorsteinson sagði frá íslenskri tík sem hann á sjálfur og er með E-mjaðmir, klínískt mjaðmalos og þolir ekki neina hreyfingu sem heitir. Hann tók undir orð bæði Guðna og Guðríðar og hvatti fólk til að fara varlega því stofninn sé svo viðkvæmur. Hann nefndi að deildin ætti að taka upp skýra ræktunarstefnu þar sem m.a. væri sagt að hunda með D og E mjaðmir ætti ekki að nota til ræktunar. Þetta væri þó einungis ræktunarstefna og ef ræktandi kysi svo þá gæti hann eftir sem áður ræktað frá sínu dýri óháð mjaðmaniðurstöðu. En ef ræktunarstefnan væri skýr væri hins vegar spurningarmerki hvort deildin eigi að benda á og auglýsa got undan hundum með D eða E mjaðmir. Elís ræðir um að myndað hafi verið til mjaðmaloss allt frá árinu 1994 og það hafi í raun verið ræktað m.t.t. þess allar götur síðan. Eftirfarandi
tillaga Jóns Magnússonar er borin upp til atkvæðagreiðslu: Haukur Birgisson sagði sorglegt að fólk í DÍF hafi ekki metnað fyrir þessu. Unnur Sveinsdóttir
spurði af hverju fundarboð ársfundar hefði ekki verið sent í pósti til félaga
í DÍF. Hún sagði það kosta 13.000-15.000 kr. og finnst henni það vera réttindi
félagsmanna að fá þetta sent í pósti eða þá með póstlista. Fundarstjóri spyrði hvort fundargestir hefðu velt deildarbás og eða göngunefnd fyrir sér og Brynhildur Inga Einarsdóttir kvaðst reiðubúin til að vinna í bás deildarinnar á sýningum. Fundi slitið kl. 21:41 Stjórnarfundur
deildar íslenska fjárhundsins Allir stjórnarmenn mættir Dagskrá fundarins: 1. Stjórn skiptir með
sér verkum 2. Ræktunarmarkmiðið 3. Afmælissýningin -
bikarar 4. Afmælishátíðin -
fólk og hundar 5. Veggspjöldin 6. ISIC ráðstefnan 7. Ný rannsókn, Pieter
og fl. 8. Deildarsýning 9. Rakkalistinn 10. Undanþáguskráning
v/íslenskrar tíkar 11. Myndband HRFÍ um
íslenska fjárhundinn Fundi slitið kl. 23:00 Stjórnarfundur
deildar íslenska fjárhundsins Allir stjórnarmenn mættir Dagskrá fundarins: 1. Deildarsýning - bréf
frá HRFÍ Stjórn DÍF hafnar algjörlega þessum rökum en reynsla undanfarinna ára hefur sýnt að deildarsýningar taka ekkert frá sýningum HRFÍ og efnahagsástandið virðist ekki stoppa fólk í að skrá hunda sína á hundasýningar. Fyrir einungis örfáum árum þótti gott ef 200 hundar væru sýndir á sýningum HRFÍ en nú eru sýndir á bilinu 600-800 hundar á hverri sýningu og ljóst að ef sýningarnar eru rétt skipulagðar séu þær umtalsverð tekjulind fyrir félagið. Að sjálfsögðu sýna fleiri á deildarsýningu þar sem sérfræðingur dæmir tegundina og vitað er fyrirfram hvaða dómari mun dæma andstætt sýningum HRFÍ þar sem ekki er gefið upp fyrirfram hvaða dómari dæmir hvaða tegund. DÍF hefur haldið deildarsýningar því sem næst árlega í fjölda ára og þar fengið tækifæri til að fá sérfræðinga til að dæma tegundina. Á sýningum HRFÍ dæma íslenska fjárhundinn oft "allrounder" dómarar sem sumir hverjir þekkja íslenska fjárhundinn lítið, jafnvel þó þeir hafi réttindi til að dæma tegundina. Kjarni sýnenda sýnir ennfremur á öllum sýningum og því ljóst að deildarsýning hjá DÍF myndi ekkert taka frá HRFÍ heldur einungis efla starf innan DÍF og bæta við og auka starf innan félagsins. Samþykkt að senda bréf til HRFÍ vegna þessa máls og taka málið upp á fulltrúaráðsfundi ef þurfa þykir. Fyrst ekki fékkst leyfi fyrir deildarsýningu á föstudagskvöldi fyrir vorsýningu HRFÍ er áhugi innan DÍF á útisýningu sumarið 2009. Ef svo ólíklega færi að halli yrði á deildarsýningunni þá er deildin reiðubúin að greiða HRFÍ það sem vantaði upp á svo sýningin komi út á sléttu. 2. Haustsýning HRFÍ -
750 hundar skráðir! Deildarbás? DÍF á að útvega 3 (leggja teppi og taka
af), 4 (í vinnu yfir helgina hvorn dag, dyragæsla ofl.), auglýsa eftir
fólki, nota póstlistann 3. Dagatalsmyndir og
dagatalsauglýsingar - auglýsa á dif.is 4. Göngunefnd 5. Bréf frá HRFÍ v/FCI 6. Bréf frá Stefáni
Arnarsyni vegna augnskoðana 7. Rakkalistinn - þarf
að komast á netið sem fyrst 8. Skotta, U-skráning -
var skoðuð á síðustu sýningu og fékk Excellent. Næstu
skref? 9. ISIC-ráðstefnan á
Íslandi 29. október - 1. nóvember. Þurfum að byrja á skýrslunni sem fyrst 10. Myndir af stjórn Fundi slitið 22:40 Stjórnarfundur
deildar íslenska fjárhundsins Mættir: Guðni Ágústsson, Þorsteinn Thorsteinson, Elís E. Stefánsson, Ágúst
Ágústsson og Helga Andrésdóttir Dagskrá
fundarins: 1.
Nýtt ræktunarmarkmið fyrir íslenska fjárhundinn Fundi
slitið 23:50 Fundur
vegna tillagna að breytingum á ræktunarmarkmiði íslenska fjárhundsins Mættir: Jóna Th. Viðarsdóttir formaður HRFÍ, Guðríður Valgeirsdóttir
varaformaður HRFÍ, Guðrún R. Guðjohnsen, Sigríður Pétursdóttir, Guðni
Ágústsson formaður DÍF, Þorsteinn Thorsteinson, Elís E. Stefánsson, Ágúst
Ágústsson, Helga Andrésdóttir. Dagskrá
fundarins: 1.
Tillaga nefndar sem vinnur að skýringum að ræktunarmarkmiði íslenska fjárhundsins
að breyttu ræktunarmarkmiði Á
þessum fundi var farið yfir tillögur nefndarinnar og þær ræddar út frá
þeim spurningum og tillögum sem stjórn DÍF sendi. Fundi
slitið 23:17
|
________________________________________________________________________ |