|
|
Af fundum .... Skýrsla
stjórnar 2007 Ársfundur
deildar íslenska fjárhundsins Fundurinn var haldinn í sal Sjálfstæðisfélagsins í Grafarvogi, Hverafold 1-3. Guðni Ágústsson formaður setti fundinn kl. 20:00 og stakk upp á Þorbergi Þorbergssyni sem fundarstjóra og Þorsteini Thorsteinson sem ritara og var það samþykkt. Dagskrá fundarins:
1. Guðni Ágústsson formaður tók til máls og las skýrslu stjórnar og fylgir skýrslan með fundargerðinni. Skýrslan verður sett á heimasíðu deildarinnar. (Smellið hér til að lesa skýrslu stjórnar) 2. Elís E. Stefánsson gjaldkeri fór yfir reikninga deildarinnar og fylgja þeir einnig fundargerðinni. Reikningarnir voru síðan bornir upp til samþykktar og samþykktir samhljóða. Fundarstjóri opnaði fyrir spurningar um skýrslu stjórnar. Stefanía Sigurðardóttir spurði um tengilið stjórna HRFÍ og DÍF sem skipaður er til tveggja ára í senn en núverandi tengliður er Guðríður Þ. Valgeirsdóttir. Stefanía spurði út í stöðuna á þessu máli en nú eru 3 ár síðan tengiliður var fyrst skipaður og reglugerð um starfsemi ræktunardeilda HRFÍ breytt m.t.t. þessa. Guðni upplýsti að á fyrsta stjórnarfundi fráfarandi stjórnar hafi málið verið rætt en þá hafði það ekki verið rætt frekar innan stjórnar HRFÍ. Stefanía Sigurðardóttir spurði hvort deildin hafi hugsað sér að sækja um aukið sjálfstæði deildarinnar til stjórnar HRFÍ. Guðni svaraði að þetta hafi ekki verið rætt innan stjórnar deildarinnar. Þorsteinn Þorbergsson upplýsti hvernig lög og reglur HRFÍ hafi þróast í gegnum árin og mótast að fyrirmynd hundaræktarfélaganna á Norðurlöndunum. Stefanía Sigurðardóttir spurði út í veggspjald það sem Búnaðarsamband Íslands vinnur að með myndum af íslenskum fjárhundum. Guðni upplýsti að veggspjaldið sé í vinnslu hjá Búnaðarsambandinu. 3. Kosningar til stjórnar. Þetta árið ganga 3 einstaklingar úr stjórn deildarinnar en það eru þau Þorsteinn Thorsteinson ritari, Ágúst Ágústsson meðstjórnandi og Helga Andrésdóttir meðstjórnandi. Lýst var eftir framboðum til stjórnar. Ágúst Ágústsson, Helga Andrésdóttir og Þorsteinn Thorsteinson gefa kost á sér og eru því sjálfkjörin í stjórn DÍF til næstu 2 ára. 4. Undir liðnum önnur mál tóku eftirfarandi til máls. Guðni Ágústsson þakkar fyrir stuðning við sitjandi stjórnarmeðlimi. Nefndir innan deildarinnar eru skipaðar af stjórn og spurði Guðni hvort einhver hafi hug á að starfa í nefndum á vegum DÍF. María Dóra Þórarinsdóttir var beðin að kynna smalaeðlispróf HRFÍ fyrir fundarmönnum en prófið er miðað að því að sjá vinnueiginleika fjárhunda. Prófið var þýtt frá Ameríku og heitir þar Herding instinct test. Stjórn HRFÍ hefur viðurkennt prófið sem vinnueiginleikapróf fyrir fjárhunda. Þetta er eðliseiginleikapróf og einungis eðlislægir eiginleikar hundsins eru skoðaðir og því þurfa hundar ekki að þekkja fé fyrir prófið. Flestir hundar standast prófið nema þeir séu hættulegir fénu, eru virkilega hræddir eða algjörlega áhugalausir. María Dóra segir að virkilega gaman væri að fá fleiri íslenska fjárhunda í smalaeðlispróf en næsta próf verður væntanlega í haust. Umræður og fyrirspurnir úr sal. M.a. var spurt til hvers sé ætlast af hundinum og upplýsir María Dóra að hver og einn hundur sé metinn á eigin grundvelli og hundar þurfa ekkert að kunna fyrir prófið. Einnig var spurt hvort prófdómari þekki íslenska fjárhundinn en María Dóra var prófdómari í fyrstu tveimur prófunum en hún á bæði íslenska fjárhunda og border collie. Þá var spurt hvort eigandi fylgi hundinum í prófinu og er það svo. Arna Rúnarsdóttir spurði hvort ekki sé tímabært að íslenski fjárhundurinn þurfi að uppfylla einhverjar kröfur, s.s. smalaeðlispróf eða skapgerðarmat, til að fá íslenskan meistaratitil? Hún spurði jafnframt hvort ekki ætti að reyna að halda sérstakt fjáreðlispróf fyrir íslenskan fjárhund. María Dóra sagðist ekki trúa öðru en að Fjár- og Hjarðhundadeildin mundi bjóða okkur velkomin í smalaeðlispróf. Helga Andrésdóttir velti fyrir sér hvort ekki væri hægt að halda sérstaka prófhelgi með smalaeðlisprófi fyrir íslenska fjárhunda. Monika Karlsdóttir spurði hvort til sé einhver æskilegasta niðurstaða á smalaeðlisprófi fyrir íslenska fjárhundinn. María Dóra segir að það sé deildarinnar að gera en til þess þurfi fyrst að skoða fyrst nægjanlegan fjölda hunda. Umræður voru um skapgerðarmat og að nauðsynlegt sé að meta fleiri hunda svo hægt verði að sjá hver æskilegasta niðurstaða hundanna verði á matinu. Þorsteinn Thorsteinson upplýstiað innan ISIC sé starfandi nefnd sem mun fara yfir niðurstöður skapgerðarmats en vandamál sé að ekki hafi nægjanlega margir hundar verið metnir hér á landi. Monika Karlsdóttir sagðist frekar vilja að gerði yrði krafa um fjáreðlispróf en skapgerðarmat. Þorsteinn Þorbergsson spurði hvort fólki finnist eðlilegt að ræktunarupplýsingar og niðurstöður heilbrigðisskoðana og prófa séu opinberar og taka fundarmenn undir það. Linda B. Jónsdóttir sagðist ekki sjá að hinn almenni hundaeigandi muni mæta með hunda sína í fjáreðlispróf, nægjanlega erfitt sé að fá hunda bara í mjaðmamyndatöku og augnskoðun. Hafþór Snæbjörnsson velti því fyrir sér hvort þetta snúist ekki að miklu leiti um kostnað. Elís E. Stefánsson sagði að nokkuð væri um ræktendur sem ekki fari að reglum HRFÍ, þeir fá áminningarbréf frá félaginu en síðan gerist ekkert meir. Þorsteinn Þorbergsson, formaður siðanefndar HRFÍ, segir að þeir sem skila inn gotskráningum sem ekki uppfylli grunnskilyrði borgi dýrari ættbók. Við þriðja brot af þessu tagi sé svona málum vísað til siðanefndar en grunnskylda HRFÍ sé að stuðla að heilbrigðri ræktun og gefa út ættbækur. Umræður um áheyrnarfulltrúa í stjórn DÍF. Guðni sagði að ekki væri óeðlilegt að HRFÍ hafi sinn fulltrúa í stjórn deildarinnar en leiðin sem farin var að því að skipa fulltrúann hafi ekki verið nægjanlega góð. Hann sagði að þetta ætti jafnvel að vera öfugt, að fulltrúi DÍF sitji fundi hjá stjórn HRFÍ. Arna Rúnarsdóttir sagði að koma verði skýrt fram hjá deildinni að áheyrnarfulltrúinn hafi ekki atkvæðisrétt í stjórn DÍF. Ágúst Ágústsson sagðist ekki sjá þörf á fulltrúa frá stjórn HRFÍ í stjórn DÍF. Fundurinn samþykkti að fela stjórn DÍF að vinna í þessu máli og að reglur varðandi áheyrnarfulltrúann verði skilgreindar betur. Stefanía Sigurðardóttir spurði hvernig boðað hafi verið til fundarins. Þorsteinn Þorbergsson sagði að til fundarins hafi verið boðað bæði á heimasíðu DÍF og HRFÍ. Stefanía lagði til að póstlisti deildarinnar verði virkjaður og að ef ekki verði boðað til ársfundar skriflega verði fundarboð sent á póstlista. Guðni Ágústsson þakkaði fundarmönnum fyrir ánægjulegan fund og stjórn fyrir ánægjulegt samstarf. Fundi slitið kl. 22:12 Formannafundur
í ISIC Þetta var aukafundur sem haldinn var sérstaklega til að fara yfir drög að lögum ISIC. Guðni Ágústsson var fulltrúi DÍF á fundinum og Þorsteinn Thorsteinson var ritari fundarins. Fundur
með formanni ISAA Mættir:
Guðni Ágústsson, Þorsteinn Thorsteinson, Ágúst Ágústsson, Helga Andrésdóttir
og Donna McDermott formaður ISAA í Bandaríkjunum. Dagskrá:
1.
Ræktunarmarkmið íslenska fjárhundsins í USA Rætt
um ræktunarmarkmið íslenska fjárhundsins í USA en Donna McDermott formaður
ISAA upplýsti stjórn DÍF á að markmið ISAA sé að finna ræktunarmarkmið
fyrir íslenska fjárhundinn í USA sem DÍF, HRFÍ, Fundi
slitið kl. 19:10 Stjórnarfundur
deildar íslenska fjárhundsins Mættir:
Ágúst Ágústsson, Elís E. Stefánsson, Guðni Ágústsson, Helga Andrésdóttir
og Þorsteinn Thorsteinson. Dagskrá:
1.
Stjórn skiptir með sér verkum Guðni
leggur til óbreytt hlutverkaskipti innan stjórnar og er það samþykkt. 2. Ræktunarmarkmið íslenska fjárhundsins
hjá 3.
Pörunarbeiðni Pörunarbeiðni tekin fyrir og afgreidd 4. Áheyrnarfulltrúi HRFÍ í stjórn DÍF Á ársfundi DÍF var stjórninni falið að hafa samband við HRFÍ vegna áheyrnarfulltrúans og að reglur félagsins varðandi hann verði skilgreindar betur. Umræður eru um málið og hvaða spurninga á að spyrja stjórn HRFÍ varðandi fulltrúann, hvert er t.d. hlutverk hans? Af hverju var reglum félagsins breytt og fulltrúinn upphaflega skipaður? Finnst stjórn HRFÍ þörf á þessum fulltrúa í dag? Á fulltrúinn alltaf að vera stjórnarmaður í HRFÍ? Í daglegu starfi finnst stjórn DÍF ekki þörf á að fulltrúi stjórnar HRFÍ sitji í stjórn deildarinnar en stjórn DÍF finnst það þó ekki óeðlilegt að náin tengsl séu milli stjórna HRFÍ og DÍF enda er um að ræða þjóðarhund Íslands, íslenska fjárhundinn. Sjálfsagt mál væri t.d. að hafa þá reglu að senda stjórn HRFÍ fundargerðir eftir hvern stjórnarfund í DÍF. Stjórn DÍF vill taka fram að þessi umræða snúist á engan hátt um sitjandi fulltrúa HRFÍ í stjórn DÍF. 5. Fulltrúaráðsfundur HRFÍ Annað
kvöld verður fulltrúaráðsfundur hjá HRFÍ. Guðni kemst líklega ekki en
Helga getur mætt á fundinn fyrir hönd deildarinnar ef Guðni kemst ekki. 6.
Íslenski fjárhundurinn í Vegahandbókinni 2008-2009 Sérstök
myndasíða verður í Vegahandbókinni um íslenska fjárhundinn en Búnaðarsamband
Íslands sér um síðuna en myndirnar koma allar frá DÍF. 7.
Veggspjald Búnaðarsambands Íslands með myndum af íslenska fjárhundinum Guðni
upplýsir að deildin muni fá tækifæri til að fara yfir myndir og myndtexta
áður en veggspjaldið verður fullbúið fyrir prentun. Ágúst muni fara yfir
skurð á myndum á veggspjaldinu og Helga mun þýða textann yfir á ensku. Fundi
slitið kl. 23:21 Stjórnarfundur
deildar íslenska fjárhundsins Allir
stjórnarmenn mættir Dagskrá
fundarins: 1.
ISIC – hætt hefur verið við að halda næstu ISIC ráðstefnu á Íslandi sökum
þess að Svíar hafa ekki efni á að koma til Íslands Ákveðið
að senda bréf til ISIC/c og allra aðildarlanda ISIC og lýsa vonbrigðum stjórnar
DÍF með þessa afstöðu klúbbsins í Svíþjóð og leggja til að ráðstefnan
verði haldin á Íslandi þó sænski klúbburinn hafi e.t.v. ekki tök á að
senda fulltrúa. Stjórn DÍF efast um að ferðakostnaður sænska klúbbsins
yrði 5 sinnum hærri yrði fundurinn haldinn á Íslandi og bendir á að DÍF
hefur ekki fasta innkomu eins og flest aðildarlönd ISIC og því er ferðakostnaður
DÍF ávallt mikill sé ráðstefnan haldin í Kaupmannahöfn. 2.
Landbúnaðarsýningin á Hellu dagana 22. – 24. ágúst Sérstök
kynning á íslenska fjárhundinum verðum tvívegis bæði laugardag og
sunnudag, um 10 mínútur í hvort skipti. Á milli kynninganna verða íslenskir
hundar á staðnum svo gestir hátíðarinnar geti skoðað íslenska fjárhundinn
í návígi. Reynt verður að hafa á staðnum hunda af sem flestum litum. Ágúst
tekur að sér að vera þulur á kynningunni. 3.
Heimasíða deildarinnar Á
heimasíðuna vantar ræktunarmarkmið íslenska fjárhundsins á pdf-formi og
enska útgáfu ræktunarmarkmiðsins vantar einnig á heimasíðuna. Guðni mun
setja ræktunarmarkmiðið á pdf-form og senda Þorsteini. Rætt
um framsetningu heilbrigðiskannana á heimasíðunni og hvaða framsetning sé
best. Allar niðurstöður augnskoðana eru birtar á netinu en eins og þetta
er gert núna þá er hætta á misskilningi. Í
nokkrum tilvikum hefur starblinda fundist í ungum hundum en þá ekki verið mögulegt
að segja til um arfgengi. Flestir þessarra hunda hafa síðar greinst með
alheilbrigð augu og á þessi fyrsta niðurstaða þeirra ekkert skylt við
arfgenga starblindu (posterior polar cataract). Skýra þarf þetta betur á
heilbrigðislistanum og setja athugasemd við fyrstu niðurstöðuna sem þessir
hundar fengu. Á
listanum eru hundar sem eiga afkvæmi með staðfesta arfgenga starblindu
merktir sem berar fyrir sjúkdóminn og er ákveðið að taka það út. Á
heimasíðuna vantar nánari útlistun á niðurstöðum heilbrigðisskoðana,
aldrei má gleyma því hve heilbrigt kynið okkar er! 4.
Anterior
polar cataract Fyrr
á árinu var íslensk fjárhundstík greind með anterior
polar cataract sem er arfgeng tegund starblindu sem veldur hundum þó
aldrei nokkrum vandkvæðum. Samkvæmt sérfræðingum er engin ástæða til að
útiloka hund með þessa greiningu frá ræktun en samkvæmt núgildandi reglum
þá ætti hundur með þessa greiningu að fara í ræktunarbann. Því er nauðsynlegt
að skrifa stjórn HRFÍ og biðja um að þessu verði bætt inn í ræktunarreglur
sem varða íslenska fjárhundinn. Einnig ákveðið að biðja stjórn HRFÍ að
fara þess á leit við sérfræðingana að þegar arfgeng starblinda finnst hjá
þá sé sérstaklega tekið fram hvaða gerð starblindu sé um að ræða. 5.
Mjóhundadeildin sýnir íslenskan fjárhund Mjóhundadeildin
stendur fyrir gamnikeppni (e. open show)
þar sem m.a. verður hægt að sýna íslenskan fjárhund en Sigríður Pétursdóttir
mun dæma kynið. Ekki verða gefnar einkunnir og er því ekki um hefðbundna sýningu
að ræða. Ekki var haft samráð við DÍF um uppákomuna. 6.
Næsta deildarsýning Rætt
um deildarsýningu en sækja þarf fljótlega um ef ætlunin er að halda
deildarsýningu hjá DÍF á næsta ári. Rætt um möguleika á deildarsýningu
laugardaginn 31. janúar. Rætt um dómara sem mögulega koma til greina. 7.
Göngunefnd Skipa
þarf nýja göngunefnd hjá DÍF. Ákveðið að auglýsa eftir áhugasömum á
heimasíðu deildarinnar. Fundi
slitið kl. 22:58 Stjórnarfundur
deildar íslenska fjárhundsins Allir
stjórnarmenn mættir Dagskrá
fundarins: 1.
ISIC ráðstefna Danmörku Sænski
klúbburinn hefur sent bréf þar sem útskýrt er af hverju þeir gátu ekki
samþykkt að ráðstefnan yrði haldin á Íslandi. Guðni kemst alls ekki frá
vegna vinnu. Stungið upp á að Þorsteinn fari á ráðstefnuna sem fulltrúi
DÍF og er það samþykkt. Byrja þarf á
skýrslu DÍF sem fyrst. 2.
Fulltrúar
ISAA hafa sent upplýsingar um rannsóknina. Ágúst veltir fyrir sér hvort
e.t.v. sé hægt að nota niðurstöður Dr. Guðbjargar Ástu Ólafsdóttur við
þessa nýju rannsókn? Guðni tekur að sér að hafa samband við Guðbjörgu
og kanna möguleikann. Augljóslega verður nokkur vinna að safna sýnum en
markmið rannsóknarinnar er að finna og kortleggja gen fyrir starblindu hjá
íslenska fjárhundinum. Ákveðið að taka þátt í rannsókninni og styðja
eftir mætti. 3.
Kynningarefni fyrir íslenska fjárhundinn Guðni
segir að vanti upplýsingar- og kynningarefni fyrir íslenska fjárhundinn. a.
Guðni hefur haft
samband við fyrirtækið Sólarfilmu. Þeir eru reiðubúnir að gera
spilastokk með 54 myndum af íslenskum fjárhundum DÍF að kostnaðarlausu. DÍF
fengi í staðinn ca. 200 spilastokka en fyrirtækið mundi eiga útgáfuréttinn
og jafnframt selja spilastokka. Allir stjórnarmenn mjög jákvæðir gagnvart
hugmyndinni. Ákveðið að fela dagatalsnefnd DÍF að vinna í málinu og
velja myndir. b.
Bæklingur. Fyrir
nokkrum árum var unnið að gerð kynningarbæklings um íslenska fjárhundinn
en þeirri vinnu var slegið á frest þegar vinna að skýringum ræktunarmarkmiðsins
hófst. Ákveðið að halda áfram með þessa vinnu en sleppa ræktunarmarkmiðinu
úr bæklingnum. c.
Silkudúkur. Elís
hefur kannað möguleika á að prenta myndir og texta á silki m.a. til að
nota í kynningarbásum á vegum DÍF. Hann sýnir prufu með mynd af íslenskum
fjárhundi sem kemur mjög vel út en ekki er mjög kostnaðarsamt fyrir
deildina að láta gera svona dúka. Dagatalsnefndin tekur að sér að vinna í
málinu og velja myndir sem koma til greina. d.
Dagatalið hefur verið
eina kynningarefnið undanfarin ár og verður að sjálfsögðu haldið áfram
að gefa það út. 4.
Heimasíða deildarinnar Guðni
veltir upp þeirri spurningu hvort auglýsa eigi öll got og eða væntanleg got
á heimasíðu deildarinnar? Á t.d. að auglýsa got undan hundum með D eða E
mjaðmir? Umræður um málið. Þorsteinn telur að fyrst ekkert er tekið fram
í ræktunarstefnu deildarinnar, t.d. um mjaðmalos þá finnist honum að auglýsa
eigi öll got sem uppfylli skilyrði HRFÍ um skráningu í ættbók. Áframhaldandi
umræður um málið og ákveðið að auglýsa áfram öll got sem uppfylli
skilyrði. Einnig ákveðið að auglýsa ekki áformuð eða væntanleg got. 5.
Pörunarbeiðni Pörunarbeiðni
tekin fyrir og afgreidd. Reynt er að benda á hunda sem ekki eiga of mörg afkvæmi
og þar sem skyldleikastuðull við tíkina er ekki of hár. Ágúst
leggur til að inni á deildarsíðunni verði fólk minnt á að láta HRFÍ
vita þegar hundar falla frá. Eftir
er að mynda mjaðmir á nokkrum karlhundum sem hafa gilda augnskoðun. Ákveðið
að senda eigendum þeirra bréf og hvetja þá til að láta mynda mjaðmir
hunda sinna. 6.
Deildarsýning Fulltrúi
sýningarstjórnar HRFÍ stakk upp á þeim möguleika að halda deildarsýningu
DÍF í tengslum við afmælissýningu HRFÍ sem stendur til að halda síðsumars
á næsta ári. Þá væri m.a. hægt að samnýta dómara. Guðni mun verða í
sambandi við sýningarstjórn og þetta verður kannað nánar. Fundi
slitið kl. 23:11. Stjórnarfundur
deildar íslenska fjárhundsins Allir
stjórnarmenn mættir Dagskrá
fundarins: 1.
ISIC ráðstefnan Ekki
eru til miklir peningar hjá ISIC. Á
ráðstefnunni var samþykkt að gefa ISIC/C leyfi til að ræða um gagnagrunn
ISIC við Bændasamtök Íslands. Talsvart
var rætt á ráðstefnunni um “by-laws” fyrir ISIC. Samþykkt var að
breyta orðalagi úr “members” í participating clubs” eða
“participants” – þetta er samstarf. Líka samþykkt að bæta í lögin að
tímarit hvers félags skuli líka send til ISIC/C. Einnig breytt að formannahópurinn
ákveði um formlega hluti og fjármál, annars séu ákvarðanir sameiginlegar.
Það var ekki tími til að fara yfir lögin í heild sinni og því var samþykkt
að mynda nefnd sem ætlar að hittast og fara yfir þetta með ISIC/C. Þessi
nefnd mun hittast á Íslandi. Jan Erikson, Svend Brand Jensen eru í nefndinni
og líka var stungið upp á Guðna. Á
ráðstefnunni var samþykkt að ISIC/C megi mynda nefndir á þeim sviðum sem
þeim finnst nauðsynlegt. Einnig samþykkt að Wilme Roem og Allir
klúbbarnir samþykktu að þeir vildu sjá fréttabréf frá ISIC, þegar það
eru einhverjar fréttir. Rætt
um ræktunarstefnu ISIC en þar er ekkert sem veldur klúbbunum kostnaði eða
vandræðum. Ákveðið
að reynt verður að afla peninga svo að nefndin um skapgerðarmat muni geta
hist og unnið að óskaprófíl fyrir íslenska hundinn. Á ráðstefnunni
stakk Þorsteinn upp á að DÍF muni skrifa HRFÍ og biðja um stuðning þeirra
svo þetta verði mögulegt. Einnig
var talað um að ef klúbbarnir hafi hugmyndir um heimasíðu ISIC myndu þeir
skrifa Guðna og Wilfred Olsen um það. Einnig að allir klúbbarnir munu skipa
tengilið sinn við heimasíðu ISIC. Samþykkt var að ársskýrslurnar muni
verða settar á varið svæði á heimasíðu ISIC. Einnig var samþykkt að Samþykkt
var að ISIC/C beri ábyrgð á að það sé ritari og fundarstjóri á ráðstefnum
ISIC. Einnig
var samþykkt að skipa nefnd til að halda áfram vinnu að formati fyrir ársskýrslur
klúbbanna. Samþykkt
var að hvetja alla klúbba til að þýða ræktunarstefnu ISIC á sitt tungumál.
Samþykkt að breyta ekki ræktunaraldrinum í ræktunarstefnunni. Ræktunarhópar
ráðstefnunnar lagði til og var eftirfarandi samþykkt á ráðstefnunni:
Wilfred
Olsen var kostinn gjaldkeri ISIC/C til næstu 3 ára. Jan Erikson var kosinn
endurskoðandi til næstu 3 ára og Liv Sydhagen til vara til 2 ára. Næsta
ráðstefna á að vera síðustu helgi í október 2009. Rætt var hvort ráðstefnan
yrði haldin á Íslandi og hefur DÍF til áramóta til að segja til um hvort
hægt sé að halda ráðstefnuna hér. Ef ráðstefnan verður ekki á Íslandi
þá verður hún haldin í Finnlandi, ef þeir geta haldið ráðstefnuna á þessum
tíma. Annars yrði ráðstefnan haldin í Malmo ef hinir tveir kostirnir verða
ekki mögulegir. Samþykkt
af DÍF að stefna á ráðstefnu ISIC á Íslandi 2009 og mun Á
ráðstefnunni var einnig rætt um að útbúa lottó/happdrætti til að afla
peninga fyrir ISIC. 2.
ISAA og þýski klúbburinn Freunde 3.
Rannsókn á starblindu í stofni íslenska fjárhundsins 4.
Bréf frá félagsmanni varðandi eineistunga og ræktun 5.
Umsókn um undanþágu frá augnskoðun 6.
Hundaspjall 7.
Breyta myndbandsspólunum í 8.
Plaköt (dúkar) með myndum af íslenskum fjárhundum 9.
Erfðir lita 10.
ISAA og ræktunarmarkmið íslenska fjárhundsins 11.
Afmælissýning Fundi slitið 23:40 Stjórnarfundur deildar íslenska
fjárhundsins Allir
stjórnarmenn DÍF mættir auk Guðrúnar Guðjohnsen sem situr í nefnd HRFÍ
sem vinnur að skýringum á ræktunarmarkmiði íslenska fjárhundsins Dagskrá
fundarins: 1.
Skýringar á ræktunarmarkmiði íslenska fjárhundsins Fundi slitið 23:30 Stjórnarfundur deildar íslenska
fjárhundsins Allir
stjórnarmenn mættir Dagskrá
fundarins: 1.
Skýringar á ræktunarmarkmiði ísilenska fjárhundsins 2.
ISIC – By-laws fundur á Geysi 6.-8. mars 3.
Fundi slitið 23:25 Fundur með nefnd HRFÍ
sem vinnur að skýringum á ræktunarmarkmiði íslenska fjárhundsins Allir
stjórnarmenn DÍF mættir fyrir utan Elís E. Stefánsson sem hefur boðað
forföll Fulltrúar
HRFÍ: Jóna Th. Viðarsdóttir og Guðríður Valgeirsdóttir Nefnd
sem vinur að skýringum á ræktunarmarkmiði íslenska fjárhundsins: Guðrún
R. Guðjohnsen, Dagskrá
fundarins: 1.
Skýringar á ræktunarmarkmiði ísilenska fjárhundsins og vinna nefndarinnar Stjórnarfundur deildar íslenska
fjárhundsins Allir
stjórnarmenn DÍF mættir Dagskrá
fundarins 1.
Fundur með stýrihópi skapgerðarmats HRFÍ 2.
Ræktunarmarkmið íslenska fjárhundsins og skýringar á því 3.
Aðalfundur DÍF Ákveðið
að lýsa eftir fólki í bæði básanefnd og göngunefnd á aðalfundi. 4.
Deildarsýning 2009 5.
Undanþáguskráning á tík 6.
Ráðstefna ISIC á Íslandi næsta haust 7.
Bréf til HRFÍ v/nefndar ISIC um skapgerðarmat 8.
Health Breed Profile hjá VísAgria á Íslandi? Fundi slitið 23:56 Stjórnarfundur
deildar íslenska fjárhundsins Allir stjórnarmenn mættir Dagskrá
fundarins: 1.
Aðalfundur 6. apríl 2009 Rætt hvort fá skuli einhvern til að kynna eitthvað áhugavert, m.a.
stungið upp á að reyna að fá Albert Steingrímsson til að kynna sporþjálfun
og tekur 2.
Tillaga frá félagsmanni um sérstaka skráningu fyrir afkvæmi hunda með
arfgenga starblindu 3.
Ræktunarmarkmið - skýringarvinna Fundi slitið 00:42 Fundur
með formanni HRFÍ Mættir: Dagskrá
fundarins: 1.
Ræktunarmarkmið íslenska fjárhundsins Fundi
slitið 19:20
|
________________________________________________________________________ |