|
|
Tvær deildarsýningar DÍF 19. og 20. janúar 2008! Sjá forsíðu um fagnað milli sýninga! Í
fyrsta sinn í sögu deildar íslenska fjárhundsins verða haldnar
deildarsýningar tvo daga í röð þar sem tveir frábærir dómarar dæma, þau Sigríður
Pétursdóttir og Kenneth Edh. Sýningarnar
verða haldnar helgina 19.-20. janúar 2008 í Glaðheimum, reiðskemmu
Gusts í Kópavogi. Laugardaginn
19. janúar dæmir Kenneth Edh íslenska fjárhundinn en
67 íslenskir fjárhundar eru skráðir á sýninguna. Sunnudaginn 20. janúar dæmir Sigríður Pétursdóttir íslenska fjárhundinn en 74 íslenskir fjárhundar eru skráðir á sýninguna. Sýningin hefst kl. 10.00 báða dagana og gert er ráð fyrir hádegishléi. Sýningartími er ekki sérstaklega áætlaður en reikna má með um 4 mínútum á hund. Ókeypis er fyrir áhorfendur og er fólki velkomið að mæta með létta stóla og sitja við hringinn. Kalt getur verið í höllinni svo við bendum fólki á að koma vel klætt og taka kaffibrúsann með! Sýnendum
er bent á að fylgjast vel með dagskránni, það er alfarið á ábyrgð
hundeiganda/sýnanda að mæta tímalega við dómhring.
Þeir sýnendur sem sýna fleiri en einn hund skulu vera búnir að tryggja sér
aðstoð. Að gefnu tilefni er rétt að árétta að starfsfólk sýningar mun gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda hreinlæti á svæðinu og vonumst við til að sýnendur geri hið sama. Engin teppi verða í hringjum. Nýjar sýningarreglur er hægt að sjá á vefsíðu Hundaræktarfélags Íslands, www.hrfi.is. Kenneth
Edh hefur dæmt um allan heim
og hefur réttindi til að dæma allar hundategundir (allrounder). Hann mun
m.a. hljóta þann heiður að velja Besta
hund sýningar á Heimssýningunni í Stokkhólmi sumarið 2008. Sigríður
Pétursdóttir er einn af
stofnendum Hundaræktarfélags Íslands og heiðursfélagi HRFÍ. Hún sat
í fyrstu stjórn félagsins, var síðar formaður þess og deildar íslenska
fjárhundsins og átti stóran þátt í að koma HRFÍ að sem aukaaðila að
alþjóðahundaræktarsamtökunum FCI. Ath:
Sýningin er í samstarfi við Schnauzerdeild og Fjár- og hjarðhundadeild
og verða því tveir dómhringar í reiðskemmunni á sama tíma báða sýningardagana.
Vonandi
sjáum við ykkur sem flest í janúar!
|
________________________________________________________________________ |