Síðast uppfært 12.12.2011

In English - coming soon 

Velkomin á heimasíðu
Deildar íslenska fjárhundsins - díf

 

 
Hundaræktarfélag Íslands - HRFÍ

 

 Forsíða

 Um tegundina

 - Ræktunarmarkmið
 - Saga
 - Ræktunarstefna
 - Heilbrigði

 Upplýsingar

 - Stjórn og nefndir
 - Af fundum

 - Sýningar

 - Gönguplan
 - Til ræktenda

Rakkalistinn

 - Ræktendur

 - Hvolpalisti (6)
 - Í leit að heimili (2)

 Ýmislegt

 - Greinar
 - Myndir
 - Til sölu
 - Eyðublöð
 - ISIC

 Fréttir

 - www.iseyjar.is

 - Gönguplan

 - Viðvörun frá Danm.

 -  Warning!!

 - Skapgerðarmat fyrir 
      íslenska fjárhunda

 

Skráning á póstlista

Nafn:

Netfang    

   

Deild íslenska fjárhundsins

Deild íslenska fjárhundsins ber ábyrgð á verndun, ræktun og heilbrigði íslenska fjárhundsins í umboði stjórnar Hundaræktarfélags Íslands sem er aðili að alþjóðahundaræktarsamtökunum FCI.


Fréttir & tilkynningar

Hátíð Íslenska Fjárhundsins


Jæja gott fólk, þá er komið að því.  Þann 14 janúar verður haldin hátíð íslenska fjárhundsins í gæludýr.is í korputorgi.  Wilma Roem mun koma til landsins og dæma ásamt því að halda fyrirlestur daginn eftir sýningu í húsnæði HRFÍ.  Sýnendur munu fá frítt inn en annars kostar litlar 500 kr á fyrirlesturinn.  Fyrirlesturinn mun fjalla um íslenska fjárhundinn, ræktun, erfðir og heilbrigði. 

Skráning mun hefjast fljótlega og verður hægt að greiða með millifærslu inn á reikning eða með kreditkorti.  Skráningargjald á sýninguna er sem hér segir:

Fyrsta skráning (1 hundur) = 3000 kr.
Önnur skráning = 2000 kr.
Þriðja skráning = 1500 kr.

Dæmi:  Ef 3 hundar eru skráðir: 3000kr + 2000kr + 1500kr = 6500 kr

Ef bara einn hvolpur er sýndur kostar 2000 kr.

 

Hér er stutt kynning sem Wilma Roem sendi okkur.

About Wilma Roem
I am a biologist with a lot of interest in dogs already from childhood. I have had companion dogs and I have been breeding pure bred dogs during my whole life. The first Icelandic Sheepdog entered my house in 1997. It was a bitch bred by Pieter Oliehoek and his former wife. So my introduction in the breed was very thorough from the beginning. Pieter and I have been discussing about genetics and the breed for years.
I started breeding Icelandic Sheepdog, my kennel name is Anacamptis. As a member of the board of the Dutch breed club I visited ISIC meetings and learned more about the breed and the people involved. I was so lucky that I was educated as a judge by Gudrun Gudjohnsen and Hans-Åke Sperne. Now I am an expert judge in my country and I am involved in educating other judges in our breed myself.

 

 


Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands 
Reiðhöllinni í Víðidal 19-20 nóvember 2011

Besti hundur tegundar (BOB) og jafnframt besti hundur sýningar (BIS) Arnarstaða Rektor og besti hundur af gagnstæðu kyni (BOS) Eir frá keldnakoti

Á mynd eru keppendur ásamt dómaranum Gert Christensen frá Danmörku



Tilkynning frá vinnuhundadeild

Helgina 26.og 27.nóvember standa Auður Björnsdóttir og Vinnuhundadeild HRFÍ fyrir dansnámskeiði fyrir hunda og eigendur þeirra. Hentar jafnt krökkum sem fullorðnum. Þetta námskeið hefur verið haldið áður og tókst vel upp.

Skráning fer fram í gegnum mail : vinnuhundadeild@gmail.com
Þátttökugjald er 8.000,-

http://vinnuhundadeildin.weebly.com/


Díf göngurnar

Göngunefndin okkar vill benda öllum á að nú eru göngurnar komnar á sunnudaga í vetur samkvæmt gönguplani ársins.

Næsta sunnudag (2. október) ætlum við að hittast við litlu kaffistofuna kl. 13:00 og ganga á Kolviðarhól, sjá gönguplan.

kv. Göngunefnd


Auglýsingar fyrir ræktendur í dagatalið 2012


Þeir ræktendur sem hafa áhuga á að auglýsa í dagatali 2012
vinsamlegast hafið samband við dagatalsnefnd
Ágúst Ágústsson dranga@simnet.is
Helga Andrésdóttir sindra@simnet.is
Matthías Arngrímsson mra757@simnet.is

Verðskrá
½ borði  33.000 kr.  50 dagatöl innifalin
Heill borði 66.000 kr. 100 dagatöl innifalin
Dagatalsnefnd

 


Dagatal DÍF 2012

Dagatalsnefnd DÍF auglýsir eftir myndum í dagatal næsta árs. Dagatalsnefnd áskilur sér rétt til að velja úr innsendum myndum. Myndirnar þurfa að sýna íslenska fjárhunda, vera á stafrænu formi og í góðri upplausn. Einnig er hægt að kaupa auglýsingar í dagatalið.

Myndirnar er hægt að senda beint til nefndarinnar á dagatal@dif.is


Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands 
Reiðhöllinni í Víðidal 27-28 ágúst 2011

Besti hundur tegundar (BOB) og 2. besti hundur í grúbbu (BIG-2) Stefsstells Skrúður og Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni (BOS) Sunnusteins Braga

Á mynd eru keppendur ásamt dómaranum Monique Van Brempt frá Belgíu


Sýning HRFÍ 27 - 28 ágúst.

Við í stjórn Díf viljum gefa ræktendum kost á að gefa bikara/verðlaun á næstu sýningu HRFÍ. Hugmyndin var að ræktendur geta gefið bikara/verðlaun í hverjum flokk fyrir sig.

Díf er með farandbikara fyrir BHT I og II.

Arnarstaða ræktun mun gefa besta hvolp tegundar 6-9 mánaða I og II

Kirkjufells ræktun mun gefa besta tók og rakka í opnum flokk

.

Allir aðrir flokkar eru opnir ef ræktendur hafa áhuga.

Hafið samband við Ágúst fyrir þriðjudaginn 23. ágúst ef þið hafið áhuga á tölvupóst dranga@simnet.is

Stjórn DÍF



DIF

Útilegan á Stokkseyri   05.til 07. ágúst 2011

 

DAGSKRÁ

Fyrirhuguð er hundaganga í nágrenni Stokkseyrar laugardaginn  Kl. 14.00

 

Matur og drykkir eru í höndum hvers og eins.

 

Eftir kvöldmat verður farið í ýmsa leiki  í boði skemmtinefndar,

og við skemmtum okkur saman fram á nótt.

                                                      

 

Allar ábendingar um leiki og annað sem fellur til eru vel þegnar.

 

Vonumst til að sjá sem flesta.

 

Stjórnin og skemmtinefnd DIF.


Hundasýning Hundaræktarfélags Íslands 
Reiðhöllinni í Víðidal 04. Júní 2011


Besti hundur tegundar (BOB) C.I.B NORDUCh ISCh DKCh NOUCh SEUCh Kersins Orri og 
Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni (BOS)
 Gyðja
ásamt sýnendum og dómara
.


Hlýðnikeppni Vinnuhundadeildar

Vinnuhundadeild hélt hlýðnikeppni 22. Maí síðastliðinn og þar var keppt í tveimur erfiðleikaflokkum (flokkur 1 og 2). Æfingarnar í keppninni eru aðeins frábrugðnar brons og hlýðni 1 prófunum. Hún Eldhamars Sunna Sól og eigandi hennar Anna Björnsdóttir gerðu sér lítið fyrir og náðu 3. sæti í flokk 1 en tóku svo 2. sæti í flokk 2. DÍF vill óska Önnu og Sunnu Sól til hamingju með þennan flotta árangur.

Það er alltaf gaman að sjá íslendinga í vinnu og ef þið hafið áhuga á að keppa í hlýðni eða mæta á æfingar hjá vinnuhundadeild þá er hægt að sjá dagskrána hjá þeim á heimasíðunni þeirra.


Opið hús hjá DÍF 12. Maí.

Kæru deildarfélagar

Næstkomandi fimmtudag 12. maí klukkan 20:00 höldum við opið hús fyrir deildarmeðlimi að Skeifunni 6 í kjallara Epal á móti BT , og væntum við þess að sem flestir mæti í léttar og skemmtilegar umræður, sem varða hagsmuni hundsins og  það sem við getum gert til að þjappa okkur félögunum saman að gera deildina opnari.

Í haust höfum við svo ákveðið að halda aftur opið hús þar sem Guðrún Guðjohnsen verður með fræðsluefni tengt hundinum okkar,en hún  hefur flutt þetta efni erlendis og fengið mikið lof fyrir.

Væntum við þess að sem flestir láti sjá sig .

Kv. Stjórnin


Gönguplan DÍF fyrir árið 2011

Þá er göngunefndin okkar komið með gönguplan fyrir árið 2011. Smellið hér...

Fyrsta gangan verður þriðjudaginn 3. maí klukkan 20:00. Það verður taumganga í grafarvogi og er mæting við Bílahöllina Bryggjuhverfi.


Augnskoðun 4. og 5. júní 2011

Finn Boserup frá Danmörku mun augnskoða hunda í Reiðhöllinni í Víðidal 4. og 5. júní nk.  Tímapantanir í augnskoðun fara fram á skrifstofu HRFÍ. Nánari upplýsingar...


Hundasýning HRFÍ 4. og 5. júní 2011

Hundasýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram helgina 4. - 5. júní 2011 í Reiðhöll Fáks í Víðidal í Reykjavík. Skráningafresti lýkur föstudaginn 6. maí 2011. Nánari upplýsingar...


Finn Boserup og Susanne Kaarsholm frá Danmörku munu augnskoða hunda í Sólheimakoti og á Akureyri 25.-26. mars.  Jafnframt munu dýralæknarnir halda fyrirlestur fyrir félagsmenn sunnudaginn 27. mars.  Tímapantanir í augnskoðun fara fram á skrifstofu HRFÍ. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður. Augnskoðun kostar 5.720.- fyrir hund og er aðeins fyrir virka félagsmenn í HRFÍ.  

 Síðasti skráningardagur er á morgun, föstudaginn 18. mars.

 Mikilvægt er að skrá sig á fyrirlesturinn til þess að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir varðandi húsnæði.  Fyrirlesturinn er eingöngu fyrir félagsmenn HRFÍ. sjá nánar á HRFI


Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands 
Reiðhöllinni í Víðidal 27. febrúar 2011
 


Besti hundur tegundar (BOB) ISCH Gerplu Dala Drífa og 
Besti hundur tegundar (BOS)
 ISCH C.I.B. ISW-09 Arnarstaða Rektor
ásamt sýnendum og dómara
(fleiri úrslit)

.

.

.


Alþjóðleg hundasýning HRFÍ 20.-21. nóvember 2010, Reiðhöll Fáks í Víðidal

.

.


Til að auðvelda ræktandum að finna sér undaneldishund hefur verið settur á vefinn rakkalisti.  Á þessum lista eru  myndaðir hundar með HD A,B eða C og gilda augskoðun.  Listinn verður uppfærður um leið og breytingar verða. (rakkalistinn)


.

.

Viltu verða góður/betri sýnandi?  - Sýnendanámskeið

Auður Sif Sigurgeirsdóttir og Þorbjörg Ásta Leifsdóttir hafa ákveðið að fara af stað með sýnendanámskeið (sjá meira).


Ágústsýning HRFÍ.

Besti hundur tegundar (BOB) Óðinn IS13764/09 og 
Besti hundur tegundar (BOS)Snætinda Ísafold, IS13995/09
ásamt sýnendum og dómara

Besti hundur tegundar (BOB): Óðinn IS13764/09

Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni (BOS): Snætinda Ísafold, IS13995/09

Besta ungviði tegundar (4-6 mánaða hvolpar)  Miðdals-Smala Tara,IS14859/10

Besti hvolpur tegundar  (6-9 mánaða): Stokk-Sels  Verðandi Snjódís IS14336/10  Besti hvolpur sýningar 2.sæti

Bestu rakkar tegundar :

1. sæti: Óðinn IS13764/09
2. sæti: 
Ísrima Máni IS11767/08  CACIP

3. sæti: Stefsstells Skrúður IS09862/06   vara CACIP

Bestu tíkur tegundar :

1. sæti: Snætinda Ísafold IS13995/09

2. sæti: Hundaslóðs Hrönn IS14046/10

3. sæti: Stefsstells Hátíð IS13431/09   CACIP


Litir á Íslenska fjárhundunum útskýrðir með tilliti til erfða.  Grein eftir Hollenska vísindamenn.

COAT COLOUR WITH GENETIC BACKGROUND OF THE ICELANDIC SHEEPDOG


Heimssýningin 2010 í Danmörku.

Besti Íslenski fjárhundurinn og Worldwinner var FICH SUCH DKCH NORDCH WW-10 Arnarstaða Hjálmur

 

Eigandi: Tommy Erik Karlsson og Hans Åke Sperne.

Dómari: Gert Christensen.

Ræktandi: Guðríður Þorbjörg Valgeirsdóttir

Sýnandi: Þorbjörg Ásta Leifsdóttir



Warning/Viðvörun (in English)


Mjög góð grein eftir Þorstein Thorsteinson ma. um Matador hunda sjá hér.


Íslenski fjárhundurinn hefur hlotið viðurkenningu sem sérstakt kyn hjá AKC.

sjá nánar á heimsíðu AKC: www.akc.org/news/

Sjónvarpsþáttur þar sem sagt var frá þessu:/american-kennel-club-welcomes-three-new-breeds


  • Ekki PRA, hjá íslenskum fjárhundi.
  • Í augnskoðun 5. júní var staðfest að PRA grunurinn hjá íslenskum fjárhundi reyndist ekki á rökum reystur.
  • Tímabundna ræktunarbannið fellur því úr gildi.
     

  • Hundasýning HRFÍ, 5.-6. júní 2010
     

    Glæsilegur fulltrúi íslenska fjárhundsins Eir frá Keldnakoti varð Besti hundur sýningar á júnísýningu HRFÍ 06.06.2010 !

    Paul Stanton frá Svíðþjóð dæmdi hana bæði á laugardegi og í BIS á sunnudegi. Sigurvegari af alls 746 hundum sem skráðir voru á sýninguna. Til hamingju !

     

    Umsögn Paul Stantons:

    Medium size.  Excellent balance.  Lovely expression.

    Exc. Eyes and pigment.  Good neck.  Very good bone and feet. 

    Exc. body.  Good tail.  Exc. hind angulation.

    Super side movement.  Loose in front.

    Beautiful coat & condition.  Exc. temperament.

    Eir frá Keldnakoti IS08261/04

    Sýnandi: Sigurður Edgar Andersen

     Ræktandi: Ragnheiður Sigurgrímsdóttir

     Eigandi: Stefanía Sigurðardóttir

     

          

Sumarsýning HRFÍ 5.-6. júní 2010

Besti hundur tegundar (BOB) Eir frá Keldnakoti IS08261/04
Besti hundur tegundar (BOS)
Trýni IS09123/05
ásamt sýnendum og dómara.

BOB: Eir frá Keldnakoti - Sýnandi Sigurður Edgar Andersen

BOS: Trýni - Sýnandi og eigandi Björk Ingadóttir

Dómari: Paul Stanton.

 

Besti hundur tegundar (BOB): Eir frá Keldnakoti IS08261/04

Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni (BOS): Trýni IS09123/05

Besta ungviði tegundar (4-6 mán) : Bjarklands Logi IS14544/10  Besta ungviði sýningar 4.sæti

Besti hvolpur tegundar (6-9 mán.) : Snætinda Gerpla IS13992/09 Besti hvolpur sýningar 4.sæti

Bestu rakkar tegundar :

1. sæti: Trýni IS09123/05
2. sæti: 
CIB ISW´09 ISCh Arnarstaða Rektor IS10191
/06

3. sæti: Stefsstells Stefnir IS11384/07

4. sæti: Arnarstaða Hrói Is12567/08

Bestu tíkur tegundar :

1. sæti: Eir frá Keldnakoti IS08261/04

2. sæti: ISCh Gerplu Dala Drífa IS07506/03

3. sæti: Arnarstaða Skrumba IS13116/09

4. sæti: Arnarstaða Skutla IS12572/08

Besti ræktunarhópur :

Arnarstaðaræktun, 2. besti ræktunarhópur dagsins

.

 


  • Alþjóðleg hundasýning HRFÍ 27.-28. febrúar 2010 í Reiðhöll Fáks í Víðidal
    Helgina 27. - 28. febrúar mæta 870 hreinræktaðir hundar af 88 hundakynjum í dóm á alþjóðlega hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands. 
    Sýningin verður haldin í Reiðhöllinni í Víðidal og hefjast dómar kl. 9:00 báða daga og standa fram eftir degi. Dómarar sýningarinnar koma frá sex löndum, Bretlandi, Spáni, Svíþjóð, Finnlandi og Króatíu en dæmt verður í sex sýningarhringjum samtímis. 
    Myndir og úrslit hjá íslenska fjárhundinum má finna með því að smella hér

.



  • Dagatal DÍF 2010
    Dagatal DÍF fyrir árið 2010 er komið út og hefur verið sent öllum skuldlausum félögum í DÍF. Þeir sem áhuga hafa á að eignast fleiri eintök er bent á dagatalsnefndina sem sér um sölu dagatalsins: 
       - Guðni Ágústsson - isey@hive.is 
       - Ágúst Ágústsson - dranga@simnet.is 
       - Elís Stefánsson - keilir@hive.is 

  • Heimssýningin 2009 í Bradislava
    Íslenski fjárhundurinn var sýndur 8. október en tegundina dæmdi Espen Engh frá Noregi. Best hundur tegundar og Worldwinner 2009 var Gjósku Ása en hún kemur úr ræktun Örnu Rúnarsdóttur og er í eigu Surtsey og Ishundur ræktana í Danmörku. Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni og World-junior-winner 2009 er jafnframt fæddur á Íslandi, Arnarstaða Kiljan sem kemur úr ræktun Guðríðar Valgeirsdóttur og er í eigu Surtsey ræktunar. 

  • Stigahæstu hundur ársins! - ISW-09
    Glæsilegur árangur ISCH Arnarstaða Rektors á hundasýningum HRFÍ á árinu gerði hann að stigahæsta sýningarhundi Íslands árið 2009 og þar með ávann hann sér titilinn ISW-09!!! 

ISW-09 ISCH Arnarstaða Rektor


BOB ISCH Arnarstaða Rektor og BOS ISCH Arnarstaða Romsa ásamt sýnendum og dómara


  • Dagatal DÍF 2010
    Dagatalsnefnd DÍF auglýsir eftir myndum í dagatal næsta árs. Dagatalsnefnd áskilur sér rétt til að velja úr innsendum myndum. Myndirnar þurfa að sýna íslenska fjárhunda, vera á stafrænu formi og í góðri upplausn. Einnig er hægt að kaupa auglýsingar í dagatalið.
    Myndirnar er hægt að senda beint til nefndarmanna sem gefa einnig allar nánari upplýsingar: 
        - Ágúst Ágústsson - dranga@simnet.is
        - Elís E. Stefánsson - keilir@hive.is
        - Guðni Ágústsson - isey@hive.is 

  • Afmælissýningar HRFÍ í reiðhöllinni Víðidal - 40 ára afmæli Hundaræktarfélags Íslands
    Reykjavík 22.-.23. ágúst 2009

    BOB ISCH Arnarstaða Rektor og BOS ISCH Gerplu Dala Drífa

    Laugardaginn 22. ágúst dæmdi Sigríður Pétursdóttir íslenska fjárhundinn en af þeim 60 sem voru skráðir til leiks varð ISCH Arnarstaða Rektor hlutskarpastur. Hann varð besti hundur tegundar (BOB), vann tegundahóp 5 og lenti í 3. sæti í vali um besta hund sýningar! Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni var ISCH Gerplu Dala Drífa

    BOB ISCH Arnarstaða Rektor og BOS ISCH Arnarstaða Romsa

    Sunnudaginn 23. ágúst dæmdi Guðrún R. Guðjohnsen íslenska fjárhundinn en af þeim 57 hundum sem skráðir voru til leiks varð ISCH Arnarstaða Rektor hlutskarpastur. Hann varð besti hundur tegundar (BOB), vann tegundahóp 5 og lenti í 2. sæti í vali um besta hund sýningar! Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni varð ISCH Arnarstaða Romsa

  • Sumarsýning HRFÍ 27. - 28. júní 2009
    22 íslenskir fjárhundar voru skráðir til leiks en tegundin var dæmd af Guy Jeavons frá Kanada.  
    Besti íslenski fjárhundurinn var Arnarstaða Rektor en hann varð jafnframt í 2. sæti í Grúppu 5. Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni var Stefsstells Salka Spesía. Besta ungviði tegundar (4-6 mánaða) var Arnarstaða Skrumba en hún gerði sér lítið fyrir og varð 2. Besti hvolpur sýningar á laugardegi! 

BOB Arnarstaða Rektor og BOS Stefsstells Salka Spesía ásamt sýnendum og dómara

BOB Arnarstaða Rektor og BOS Stefsstells Salka Spesía
ásamt sýnendum og dómara


  • Póstlisti DÍF
    Vakin er athygli á búið er að útbúa póstlista fyrir DÍF og er hægt að skrá sig á listann hér til hliðar á síðunni. Á listann munu berast tilkynningar frá deildinni eftir því sem við á en um leið og listinn var opnaður var netfang deildarinnar virkjað, dif@dif.is

  • Alþjóðleg hundasýning HRFÍ 28. febrúar - 1. mars 2009!
    42 íslenskir fjárhundar eru skráðir til leiks en tegundin var dæmd af Hans  Van Den Berg frá Hollandi

    Besti íslenski fjárhundurinn var Arnarstaða Rektor en hann varð jafnframt í 2. sæti í Grúppu 5. Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni var Kirkjufells Kringla. Besta ungviði tegundar (4-6 mánaða) var Arnarstaða Skutla. Besti hvolpur tegundar (6-9 mánaða) var Stefsstells Salka Spesía en hún gerði sér lítið fyrir og varð 3. Besti hvolpur sýningar á sunnudegi! Besti öldungur tegundar var ISCH Gjósku Vaskur og Besta par tegundar voru ISCH Gjósku Vaskur og ISCH Gerplu Dala Drífa.  
    BOB Arnarstaða Rektor ásamt sýnanda og dómara Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni (BIM9 Kirkjufells Kringla ásamt sýnanda sýnum, sem jafnframt er eigandi og ræktandi
    Bestu hundur tegundar og 2. sæti
    í Grúppu 5:
    Arnarstaða Rektor
    Besti hundur tegundar af gagnstæðu 
    kyni:
    Kirkjufells Kringla

  • Rannsókn á starblindu hjá íslenska fjárhundinum
    Fyrirhuguð er rannsókn á arfgenginni starblindu (cataract) hjá íslenska fjárhundinum. Fulltrúar Icelandic Sheepdog Association of America (ISAA) settu sig í samband við fyrirtæki sem hlaut styrk til að rannsaka starblindu í Norrænum hundategundum og koma því við að íslenski fjárhundurinn mun taka þátt í rannsókninni.

    Fyrirtækið hefur náð að einangra erfðamörk (e. genetic marker) fyrir arfgengri starblindu í nokkrum öðrum hundategundum og verður byrjað að kanna hvort sömu erfðamörk finnist í stofni íslenska fjárhundsins. Ef ekki verður erfðamengi stofnsins kortlagt og reynt að einangra erfðamörk fyrir starblindu í hundunum okkar.

    Hlutfall íslenskra fjárhunda með arfgenga starblindu er mjög lágt og því verða tekin sýni frá hundum í Ameríku, Íslandi og í öðrum Evrópulöndum. Tekin verða sýni frá allt að 75 íslenskum fjárhundum á Íslandi, eigendum þeirra algjörlega að kostnaðarlausu.

    Útbúinn hefur verið listi yfir hunda sem reynt verður að fá sýni frá og verður haft samband við eigendur þeirra á næstu vikum. Allt eru þetta hundar sem hafa verið augnskoðaðir á vegum HRFÍ en á listanum eru:
    - Hundar með arfgenga starblindu
    - Foreldrar þeirra og afkvæmi ef einhver eru
    - Systkini hunda með arfgenga starblindu
    - Afar og ömmur hunda með arfgenga starblindu
    - Aðrir fullorðnir hundar með heilbrigð augu

    Ef tekst að greina eða einangra erfðamörk fyrir arfgenga starblindu hjá íslenska fjárhundinum munu niðurstöður einstakra hunda einungis verða sendar beint til skráðs eiganda og einungis verða aðgengilegar honum.

    Vonumst við til að fólk taki taki þátt í rannsókninni og hjálpi þannig til við greiningu á stöðu arfgengrar starblindu í stofni íslenska fjárhundsins.

  • Þegar hundar falla frá ....
    Af gefnu tilefni viljum við minna fólk á að láta vita á skrifstofu HRFÍ þegar hundar falla frá


  • Dagatal DÍF 2009
    Dagatalsnefndin auglýsir eftir myndum af íslenskum fjárhundum fyrir dagatal DÍF 2009. Myndirnar þurfa að vera á stafrænu formi og í góðri upplausn en nefndin mun velja úr innsendum myndum. 

    Nánari upplýsingar hjá nefndarmönnum: 
    - Ágúst framrudan@simnet.is
    - Elís keilir@hive.is
    - Guðni isey@hive.is 

  • Heimssýningin 2008!WW-08 Surtsey´s Fafnir
    Alls voru 20.674 hundar af 342 hundategundum skráðar til leiks og því var mikið að sjá alla sýningardagana. Þónokkrar þessarra tegunda höfðu aldrei verið sýndar í Svíþjóð áður en hjá Sænska Hundaræktarfélaginu eru skráðar 316 hundategundir. 

    WW-08 Gjósku Ása52 íslenskir fjárhundar voru skráðir á heimssýninguna en þjóðarhundurinn dæmdi enginn annar en heiðursfélagi HRFÍ, Guðrún R. Guðjohnsen. Besti íslenski fjárhundurinn og WorldWinner 2008 var DE&VDHCH DKUCH INTUCH PLCH SUCH WW-06 WW-08 Surtsey´s Fafnir en hann er ræktaður í Danmörku. Besta íslenska fjárhundstíkin fær sömuleiðis WorldWinner titil en hún heitir DKUCH INTCH KLBCH KBHV06 KLBV06 DKKV07 DKJUBV07 SUCH WW-08 Gjósku Ása. Hún er fædd á Íslandi, ræktuð af Örnu Rúnarsdóttur en búsett í Danmörku. Annar hundur ræktaður á Íslandi gerði það sömuleiðis gott á heimssýningunni en Arnarstaða Hjálmur fékk sænskt meistarastig. Hjálmur býr nú á Álandseyjum og er úr ræktun Guðríðar Valgeirsdóttur. 

    Úrslit íslenska fjárhundsins á heimssýningunni má sjá með því að smella hér. 

    Í tengslum við heimssýninguna var einnig haldin sérsýning fyrir íslenska fjárhundinn. Þar dæmdi Per-Erik Wallin frá Svíþjóð og voru 75 hundar skráðir til leiks. Besti hundur þessarar sýningar var fæddur á Íslandi, ISCH DKCH SUCH NORDUCH Kersins Orri, en hann býr nú í Danmörku. Ræktandi Orra er Helga Gústavsdóttir.  

    Arnarstaða Hjálmur Kersins Orri

BHT1 Bjarkarkots Dimma Nótt og BHT2 Íslandssólar Grímur ásamt sýnendum og dómara

Smellið hér til að sjá myndir og úrslit!


  • Okkur vantar myndir! 
    Nú eru komnar myndir af um 400 íslenskum fjárhundum á www.iseyjar.is en gaman væri að fá fleiri! Þeir sem eiga myndir af hundum sem engin mynd er af á síðunni eru hvattir til að senda þær til  Guðna á netfangið dif@hive.is. Stafrænar myndir þurfa helst að vera í nokkuð góðri upplausn en einnig má senda Guðna myndir á pappír sem hann skannar þá inn og sendir eiganda til baka. 

Alþjóðleg hundasýning Hundaræktarfélags Íslands 1.-2. mars 2008 í Reiðhöllinni í Víðidal 
Stefsstells Skrúður ásamt sýnanda og dómaranum sem dæmdi úrslit í Tegundahópi 5

42 íslenskir fjárhundar voru skráðir til leiks en dómari var Nils Molin frá Svíþjóð. 
Besti hundur tegundar var Stefsstells Skrúður en hann vann jafnframt Tegundahóp 5 og varð 4. Besti hundur sýningar!.
Úrslit og myndir af sýndum íslenskum hundum eru komnar á vefinn!

.


Tvær deildarsýningar DÍF 19. og 20. janúar 2008 í reiðskemmu Gusts í Kópavogi!

Úrslit beggja sýninga og myndir af öllum sýndum hundum eru komin á síðuna!


Deildarsýning DÍF 20. janúar 2008
75 íslenskir fjárhundar voru skráðir til leiks en dómari sýningar var Sigríður Pétursdóttir
Smellið á myndina til að sjá hana stærri!Besti hundur sýningar var ISCH Arnarstaða Romsa og Annar besti hundur sýningar var Kersins Orri

Kersins Orri fékk stig til íslensks meistara og hefur nú öðlast rétt til að sækja um titilinn ISCH. Kirkjufells Kringla fékk sömuleiðis íslenskt meistarastig og þarf nú einungis eitt til viðbótar til að geta sótt um sama titil. 

 

Deildarsýning DÍF 19. janúar 2008 
67 íslenskir fjárhundar voru skráðir til leiks en dómari sýningarinnar var Kenneth Edh frá Svíþjóð
Smellið á myndina til að sjá hana stærri!Besti hundur sýningar var Kirkjufells Kringla og Annar besti hundur sýningar var Íslandssólar Grímur

Kirkjufells Kringla og Íslandssólar Grímur fengu bæði sitt fyrsta stig til íslensks meistara, ISCH, á þessari sýningu. 


  • Ath. Nýjar sýningareglur tóku gildi hjá Hundaræktarfélagi Íslands 1. janúar 2008! Nánar ...

  • Breyting á ræktunarreglum fyrir íslenskan fjárhund. 
    Breytingin tekur gildi 01.06.2007. 
    Gildistími augnskoðunar hjá íslenska fjárhundinum er 12 mánuðir en séu hundar augnskoðaðir eftir þriggja ára aldur gildir augnskoðunin í 26 mánuði. 

  • Per-Erik Sundgren á fyrirlestinum 12.05.2007Dr. Per-Erik Sundgren - fyrirlestur 12. maí 2007!
    Efni fyrirlestrarins var hundarækt, ræktun lítilla stofna og síðast en ekki síst íslenski fjárhundurinn og staða og framtíðarhorfur í ræktun hans. Hér var um að ræða einstakt tækifæri sem enginn áhugamaður um hundarækt og íslenska fjárhundinn hefði átt að láta fram hjá sér fara. Um 50 félagar í Hundaræktarfélagi Íslands og eða DÍF sóttu fyrirlesturinn en komar eru myndir frá fyrirlestrinum inn á vefinn. Nánar ...

  • Fundargerðarbækur DÍF frá upphafi innbundnar!
    Nánar ...

  • Á  www.iseyjar.is er að finna gagnagrunn yfir alla íslenska fjárhunda sem hafa verið skráðir hjá Hundaræktarfélagi Íslands frá því skráningar hófust. Hægt er að leita að einstökum hundum hvort heldur er eftir nafni eða ættbókarnúmeri, skoða bakgrunn hundanna, niðurstöður mjaðaskoðana (HD), afkvæmalista og nafn eiganda!

  • Viðvörun frá Danmörku
    Islandsk Fårhundeklubb í Danmörku og danska hundaræktarfélagið hafa beðið DÍF að vara meðlimi sína við nokkrum ræktendum sem selja hvolpa án FCI-viðurkenndra ættbóka. Nánar...

    19.05.2006.

  • Skapgerðarmat
    Ákveðið hefur verið að gera átak í skapgerðarmati á íslenskum fjárhundum á Íslandi og vill stjórn deildar íslenska fjárhundsins því hvetja alla eigendur íslenskra hunda á viðeigandi aldri að mæta með hundana sína í skapgerðarmat á vegum HRFÍ. Nánar...
    03.05.2006. 
 

________________________________________________________________________
Best er að skoða þessar síður í 1024x768 pixels upplausn. Umsjónarmaður vefs.
© 2006-2007 Deild íslenska fjárhundsins. Afritun óheimil án leyfis. Allur réttur áskilin